Luddurnar mínar

Alveg hreint frábær ludduhittingurinn á fimmtudag..... Byrjaði kannski ekkert rosalega vel þar sem einhver (ég) gleymdi að Hafnarfjörður væri nær Keflavík heldur en Kópavogur þannig að drive-planið fór út um þúfur og við mættum ca. 20 mínutum of seint í matarboðið.... engu að síður var roadtrippið bara skemmtilegt og Þórunn driver stóð sig með stakri snilld.
Maturinn hjá Guðrúnu var rosalega góður, ekkert skrítið að hún sé búin að ná sér í kall miðað við eldamennskuna.... við vorum allar svo saddar að við beinlínis ultum út um miðnætti.... eðalpasta, salat, brauð, kaka og ostasalat.....nammmm!
Kakan var nú samt það allra flottasta við hittinginn, og eins og sjá má af myndinni hér að neðan þar sem piparjúnkurnar voru fengnar til að stilla sér upp með typpakökunni og horfa á hana löngunaraugum, þá er Guðrún snillingur í kökuskreytingum. 
Nostalgían náði hámarki þegar Guðrún tók fram myndaalbúmin.. Sigga Ása átti metið í ljótum fatnaði og Ella í ljótu hári....ha ha ha... sem betur fer hafa þær báðar náð tökum á þessu með árunum, það voru líka ýmsar myndir af kossum sem allar voru búnar að gleyma að hefði átt sér stað...
Ég þakka kærlega fyrir mig elsku luddurnar mínar og get ekki beðið eftir næsta hitting, í kvöld er það svo ljósanótt hjá Keflóhjúkkunum og við Dröfn ætlum að hætta á annað roadtrip, þar sem ég ætla bara að halda kjafti og leyfa henni að keyra ;)
