]]>

Wednesday, August 31, 2005 

Uppfinningar Mallorca ' 05



Ég gleymdi nú að segja frá nokkrum merkilegum hlutum úr Mallorca ferðinni....

.....á leiðinni út, nánar tiltekið í Leifstöð þar fundum við Svanhildur þessa fjöður sem þið sjáið á myndinni, án efa eftir flugunga sem hefur verið að klekjast út og breytast í flugvél....





....á leiðinni heim af djamminu eitt kvöldið tókum við eftir gæða furu sem stiginn upp á hótel var búin til úr.... ekki hefði mann grunað að maður fyndi svona fína furu annars staðar en í Svíþjóð.




.......ef vel er að gáð þá er geit á þessari mynd!!!!
já alvöru geit, seinna í ferðinni keypti ég mér einmitt leðurjakka úr þessari sömu geit.

(....svo er auðveldlega hægt að prenta þessa mynd út og hafa sem gestaþraut í næsta boði... "finndu geitina" gæti sá leikur kallast.)





Ég fann einbeitta brotaviljann minn eins og sést
greinilega á þessari mynd... ákvað eitt kvöldið á leiðinni heim af barnum að skrifa á hótelið "Elín og Svanhildur voru hér"
Komst svo að því daginn eftir að sektin við svona skemmdarverkum voru einhverjar 900 evrur..... sem betur fer eru nöfnin okkar mjög algeng á Spáni... já eða svoleiðis sko...






Þegar sumir eru á ferðalögum þá finna þeir tvífarann sinn.
Ég fann andstæðuna mína.



 

Jæja snípóblogg númer 3.

Tóta ætlar að keyra okkur til Kefló þannig að það verður farið frá henni kl:7 (fyrr ef allar eru komnar) allar með heimilisfangið hennar á símunum ykkar, ætla ekkert að pósta það á veraldvefnum ;o)


Víííí roadtrip........ næstum eins og bílinn hennar Tótu ------>


Monday, August 29, 2005 

Snípuludduhittingur

Á fimmtudaginn hjá Guðrúnu í Kefló.... mæting ca. sjö, hálfátta og skvísan ætlar meira að segja að vera með mat :)
Hlakka til að sjá ykkur dúllurnar mínar!


 

laugardagsdjamm

Fallin????
nei nei bara verið að finna sér e-h að gera fyrst sjónvarpið er ónýtt!


Saturday, August 27, 2005 

R.I.P

Það var eins og mig grunaði, eftir vinnu í gær var haldið í Bónusvidjóleiguna.... ein dvd og aukavidjóspóla......
......kvöldinu reddað þangað til ég kom heim og kveikti á sjónvarpinu þá heyrðist bara *Phhfffff* og það var dáið....

Í nokkra mánuði höfum við Svanhildur hlustað á hátíðnihljóð, sem við héldum að kæmu úr hinum ýmsu heimilistækjum, búnar að taka laptoppinn úr sambandi oftar en einu sinni, slökkva ljósin, setja heimilissímann í hleðslu osfrv. ekkert virkaði þangað til að við áttuðum okkur að helvítis hljóðið kæmi úr sjónvarpinu, þá var náttúrulega prófað að skipta um stöðvar, hækka og lækka
(á sjónvarpinu nb. enda kötturinn löngu búin að hella vatni yfir fjarstýringuna) en aumingjans sjónvarpið hefur greinilega bara verið á sínum síðustu mómentum að bræða úr sér.

Sem betur fer var til varasjónvarp á heimilinu sem er ca. 3ja tommu, þannig að við gátum allavega horft á myndirnar úr Bónusvidjó.... reyndar ekkert scart tengi á 3" tækinu þannig að ég varð að skreppa aftur á leiguna til að fá að skipta dvd-inu yfir í vídjómynd, stelpan á leigunni horfði á mig með ásökunaraugum "eru tveir tímar eða lengra síðan þú tókst myndina?"
og ég alveg "ha nei bara svona korter" eins og ég hefði tekið dvd farið heim að horfa á hana koma svo tveim tímum seinna og biðja um SÖMU myndina á vidjó!!! ha ha gott plott!

Hvað ætti maður svo að gera í kvöld? kaupa kíki og glápa á imbann?


Friday, August 26, 2005 

Leiðindahelgi og Konungar

Hvað á svo að gera um helgina?

...allavega get ég ekki tjúttað svona eins og reyklaus aumingi, ætli Bónusvidjó fái ekki bara dúndurviðskipti um helgina og tollurinn á eftir að sitja óhreyfður inní vínskáp.

...en að öðru en sjálfsvorkun þá las ég svoldið í gær og áttaði mig á því hvað ég er ótrúlega barnaleg, er það bara á almennings vitorði að konungsfjölskyldur eru styrktar með skattpeningum?
Nú eru Alexandra og prinsinn hennar í Danmörku að skilja og á næsta ári fær hún 19 milljónir króna í lífeyri. 7 milljónir eru teknar af lífeyri prinsins en afgangurinn er tekinn aukalega úr ríkissjóði.
Friðrik krónprins fær líka rúmlega fimm milljóna króna launahækkun og lífeyrir hans á næsta ári verður því samtals rúmlega 160 milljónir króna.

Ég hélt einhvern vegin alltaf að þetta lið ætti svona geyma fulla af gulli eins og Jóakim aðalönd og myndi eyða frídögum sínum í að synda þar... !!!!

Hérna að neðan er skemmtileg síða um konungsfjölskylduna í Danmörku, allavega er Jóakim núna á lausu spurning hvort maður ætti ekki að tékka á því svona uppá lífeyri í framtíðinni, þó svo að ég hafi fengið launahækkun í dag vú hú...!

http://www.kongehuset.dk/artikel.php?dogtag=k_dk_familien



ps. Hvað er að bloggernum, hann gerir bara e-h bil þegar maður gerir edit post og svo er ekki hægt að setja inn myndir né linka....grrrrrrr.....


Wednesday, August 24, 2005 

Fyrsti í reykleysi!

Gengur bara vel, enda ekki nema 12 tímar frá síðustu rettu þar með talin nóttin... ætli maður byrji ekki að skjálfa eftir hádegi?


Monday, August 22, 2005 

Jarðafarir og Menning

Fínasta helgi að baki....
....á föstudaginn ákváðum við vinnufélagarnir að eftir erfiðan dag (jarðaför fyrrverandi vinnufélaga) myndum við skella okkur út og fá okkur bjór sitja og hlæja svoldið.
Við töluðum einmitt mikið um jarðafarir, vorum við tvær sammála um að svona kirkjuútfarir væru rosalega þrúgandi og erfiðar......
.......ég segi allavega fyrir mína parta þá myndi ég vilja vera brennd, öskunni dreift í eyjum við stutta minningarathöfn, svo myndu vinir og fjölskylda setjast saman einhvert.... út að borða eða eitthvað og spjalla bara, minnast og hafa gaman... fagna því að ég hafi verið til yfirhöfuð...
(já ég er að reikna með því að einhver sé ánægður með það!)

...allavega þá sátum við í 8 tíma í sömu sætunum að kjafta, drekka bjór og hlæja eins og vitleysingar.... vona að vinnufélaginn hafi fylgst með okkur að ofan því ansi margar skemmtilegar sögur af henni voru rifjaðar upp.

Menningarnóttin var líka mjög skemmtileg, en vegna ástandsins á mér eftir föstudaginn þá var ég kannski ekki alveg í fullu fjöri við að troðast í miðbænum í rigningunni.... fór þess vegna heim og kíkti bara aftur í bæinn eftir flugeldana þegar farið var að fækka aðeins í bænum.... reyndar troðið á flestum stöðum..... en alveg helvíti skemmtilegt, er meira að segja með harðsperrur í hendinni eftir að hafa farið í sjómann við einhvern mann uppá bjór (ég vann, en það var reyndar með vinstri og hann var með sinaskeiðabólgu)

læt þetta duga á meðan ég er að reyna að detta í blogggírinn eftir sumarfrí...

ps. Sorrý Dröfn mín, gleymdi að láta þig vita að rauði dregillin var úti á laugardag!

pps..... Snípuludduhittingur í næstu viku þar sem Ella og Sigga verða í bænum, details later!





Thursday, August 18, 2005 

Ok verð að birta smá ráðleggingu handa Rósu og Valla sem eru á Costa....











Svona er hægt að fela lykilinn af öryggishólfinu.....Bodyshop to the rescue!


 

Mallorca 2005!


Ok...fríið búið fyrir löngu og kannski bara komin tími á að hætta þessari leti.

Mallorca var náttlega bara æði!
Ég nenni nú ekki að skrifa alla ferðasöguna eiginlega bara af því að hún er svo löng en líka svoldið útaf því að ég er eiginlega ennþá í fríi í huganum og nenni engu.

Læt nokkrar myndir fylgja og óska þess svo að blogg-muse-in mín láti sjá sig, ef einhver sér hana segið henni að ég sé að leita að henni (og vinnu-muse-inni, en hún skiptir minna máli)




Lestarferð um appelsínuakra

Þreytt eftir verslið


Barþjóninn okkar frá Úrugvaí


Vinur minn sem var verið að steggja á Coyote Ugly barnum

Uppáhaldsbarinn