]]>

Saturday, February 26, 2005 

Viltu taka við þessari rós?

Fjölmargir búnir að hvetja mig til að vera með í íslenska piparsveinaþættinum í haust, jafnvel þó ég hafi aldrei verið í Séð og heyrt...
....er búin að taka ákvörðun um að vera með ef þessi verður bachelorinn... enda búin að vera skotin í honum síðan hann leit svona út.

Ætla að hætta að vera með þessa feimni og make my move!


Friday, February 25, 2005 

Pipar og salt

HA HA HA HA HA HA HA HA HA!

Þori að veðja að meirihlutinn af liðinu í þessum þætti hafi verið á einhverjum eða jafnvel öllum af eftirfarandi stöðum:
Ungfrú / Herra Ísland
Djúpa Laugin
Séð og Heyrt
Innlit/Útlit
.....djöfulli hlakka ég til


 

Hún á afmæli í dag....

Þessi yndislega stúlka er 16 ára í dag!
Til hamingju með daginn elsku Sandra mín!


Nokkuð viss um að hún verði ekkert sérstaklega ánægð með að þessi síða sé enn til...ha ha ha....
..........Sandra kanntu ennþá að fara í konnís?


Wednesday, February 23, 2005 

Viltu vera falleg?

Ég er svo spennt að komast heim í kvöld og horfa á americas next top model.... finnst þessir þættir bara frábærir.. svo mikið drama að ég gæti grenjað úr hlátri..
Ég sá aftur á móti þátt um daginn sem ég hélt ég myndi gubba yfir og ég ætla ALDREI að horfa á aftur hann heitir Swan og er á Skjá 1... mér hefur einmitt alltaf fundist Extreme Makeover frekar ömurlegir þættir því það er aldrei gert bara við td. nefið á fólki heldur er bætt við aukahöku, soguð fita, nýjir bobbingar og "porcelen veeners" á alla sem mæta í þáttinn og oftar en ekki þá líta allir alveg eins út þegar búið er að græja þá....
.....en þessi Swan þáttur sló öll met.... e-h aumingjans konur sem hefðu frekar þurft nokkura ára meðferð hjá sálfræðingi heldur en útlitsbreytingu... og þær fengu ekki einu sinni að tjá sig um hvað þær væru óánægðar með heldur voru e-h fávitar sem þóttust sko alveg vita hvernig hægt var að gera þær sætar fyrir e-h fegurðarsamkeppni sem þær eru svo að keppast við að komast í.... eftir aðgerðirnar litu þær svo báðar út eins og lélegar dragdrottningar...
ómæ god ef ég er röflandi kjelling fyrir að segja þetta á só bí it... mér leið svona eins og ég væri að horfa á nauðgun.....


Þessi þáttur sannar bara það sem Botnleðja segir og er sko alveg satt.
FÓLK ER FÍFL!





PS. Mínutum eftir síðasta blogg sendi hún Rósa mín mér myndir af mér á nærunum góðu... ég er sko ekkert að reyna að komast undan því að sýna þær... þarf bara að gera það að heiman ;)


Monday, February 21, 2005 

Nammidagur!

Já ég á aldrei eftir að klára að setja inn myndirnar úr digital myndavélinni síðan úr singstarpartýinu þar sem ég pósaði í ætu nærunum sem Rósa tyllitappadrottning gaf mér frá útlandinu.... en hérna getið þið skoðað þær!
Þetta er náttlega bara frábærasta gjöf sem ég hef fengið.... veit ekki ennþá hvað ég á að gera við þær.... var að spuglura í að ramma þær inn.
Annars kom Lilja systir með frábæra hugmynd þar sem hún hefur talsverðar áhyggjur af kallamálunum mínum (aðallega vegna þess að hún hefur ein séð um barnabörnin fyrir mömmu)
það er að ég ætti að skella mér út á laugardagskvöldi í nærunum góðu og kalla:
"Strákar það er nammidagur"
.....................ha ha ha.... örugglega besta pikköpplína ever!


Tuesday, February 15, 2005 

The cheesy tourist

Nei ég fékk sko engin blóm í gær....isss...
Mér er nú reyndar alveg sama... er þó vön að fá allavega eitt kort frá gamla ameríkananum mínum en fékk þess í stað sms frá honum degi seinna.... lem hann næst þegar ég sé hann.
Mér fannst einmitt svo kúl fyrst þegar ég fékk kort á valentínusardaginn fílaði mig eins og svona unglingsstúlku í amerískum hæ school... munurinn reyndar sá að ég fann það undir koddanum mínum en ekki inní lockernum og ég var í náttfötum en ekki í klappstýrubúning........

Anyways... ástæða bloggsins í dag er sú að ég sá eitt ógeðslegt í morgun sem mig langaði að segja ykkur frá... Það var túristi í strætó í morgun með brauðsneið og ostbita,
og nú spyrja margir sig " ha? með brauðsneið og ostbita? "
.....en nei, þótt merkilegt sé þá er sagan ekkert búin....
Hann var sem sagt að borða og gramsa í tösku og setti aðra brauðsneiðina á sætið við hliðina á sér og ostbitann þar við hliðina þannig að hann rúllaði í veltingnum í sætisboruna, þar sem sætið og sætisbakið mætast, túristinn hélt áfram að kjamsa á því brauði sem hann hélt á í hendinni og gróf svo upp ostinn öðru hvoru loðinn og skítugann úr sætisborunni og fékk sér á milli þess að hann smjattaði á brauðinu.... ég hélt ég myndi æla... nógu slæmt að mannasninn setti brauðið á sæti í strætó og æti það svo..... en OSTINN!!!
Allir sem þekkja mig vita að mér finnst ostur mjög góður en ég get ekki borðað ost nema að ég opni sjálf pakkninguna og gleymdu því að ég borði ost sem búið er að sneiða fyrir mig eða borði fyrstu sneiðina af ostinum....yyyyuuuuckkk.


Þetta var ostasaga dagsins...


Saturday, February 12, 2005 

Ég veit ekki...

...hvað er að mér, ég e-h vegin vill aldrei blogga nema að plana það e-h, eins og td. núna þá er ég ekki búin að blogga af því að ég ákvað að næsta blogg ætti að vera um singstar partýið um síðustu helgi og namminærbuxurnar sem Rósa gaf mér en ég er ekki búin að setja myndirnar sem áttu að fylgja inní tölvuna þannig að ég hef verið að passa mig að blogga ekki þangað til að það gerist.....

...moral of the story... maður má blogga þegar maður vill


Tuesday, February 01, 2005 

Its the little things.

Í dag eru það eru litlu hlutirnir sem gleðja mig!

.... í vinnunni minni er fullur ísskápur (amerískur) af Brownies sem þarf að klára fyrir helgi svo þær skemmist ekki... (aldrei að vita nema ég taki með mér heim líka handa poppætunni og bjóði Rósunni í Brownies)

Samkvæmt Fréttablaðinu í morgun þá er frítt að fara til tannsa á föstudag...gott að kíkja og fá verðtilboð svo hægt sé að koma því á verðplanið fyrir 2005... ekki seinna vænna.

Erfiðasta kona landsins sem ég var að teikna eldhús fyrir var ánægð með teikninguna mína og vill bara breyta einum skáp....vú hú!