]]>

Saturday, April 30, 2005 

Note to self

.......aldrei fá sér kampavín í hádeginu
.......aldrei sitja við hliðina á finna á Fjörukránni
.......aldrei skála við útlendinga í brennivín
.......aldrei að fá sér tequila eftir ráðstefnu
.......aldrei draga 7 dani með sér á útgáfutónleika hjá Úlpu
......aldrei fara aftur út á meðal fólks


Wednesday, April 27, 2005 

Hvenær kemst upp um mig?

Mér finnst ég stundum vera svona 'in over my head' í daglega lífinu, ég er alls ekkert eins fullorðin og fólk vill láta mig vera.... til dæmis er hjá mér ráðstefna um helgina í vinnunni! RÁÐSTEFNA! Common síðan hvenær var ungum stúlkukjánum hleypt á ráðstefnur?
Ég man allavega ekki eftir því að hafa fullorðnast.... þetta hlýtur að hafa gerst á meðan ég var full, ég get svarið það!


 

Ha ha ha

Beauty is in the eye of the beer holder.


Monday, April 25, 2005 

Glæný manneskja!

Til hamingju elsku María og Stefán með nýfædda dóttur!
Hún fæddist kl:13:48 í dag og var 11 merkur og 48,5cm.


 

Sunnudagur til sælu

Dagurinn í gær var bara einn sá albesti sunnudagur sem ég hef upplifað.... byrjað á brönsi á Vegó með Svanhildi, tjillað frameftir degi og kíkt á nýja animation diskinn minn sem ég fékk í afmælisgjöf og svo var hittingur hjá gömlu góðu Snípuluddunum.

Þórunn bauð okkur í sunnudagslæri sem var geðveikt gott (Stefán á víst heiðurinn)
með öllu því meðlæti sem maður gæti hugsað sér... og svo Jóa Fel köku í eftirrétt (again Stefán á víst heiðurinn)
Svo var að sjálfsögðu blaðrað langt fram á nótt og endaði með því að nágrannarnir voru farnir að banka því lætin í okkur voru kannski einum of mikil.....
ógeðslega gaman hjá okkur.... næst verður myndakvöld þar sem að það voru ekki alveg allir að muna eftir öllu sem við vorum að tala um og sumir (ég) eiga sko myndir til að sanna mál sitt.

Takk fyrir mig Tóta mín... frábært kvöld!


Sunday, April 24, 2005 

Mont dagsins

Ég á miða á Franz Ferdinand og Velvet Revolver..... ligga ligga lá!


Saturday, April 23, 2005 

Sko mig

Glæsilegt nýja commentakerfið..... verst að trackbackið er enn inni.
Verð að spyrja Fíu hvernig maður tekur það út :)


 

The four arsed woman.

Ég er hætt í fýlu....
enda ekki annað hægt, hringdi í Svanhildi í gær og bað hana að gefa mér gleði mína á ný, við fundum gleðina á Eldsmiðjunni, ógeðslega góður matur og bjór, sáum svo konu með fjórar rasskinnar...


Friday, April 22, 2005 

Neibb

....nýja commentakerfið er ekki að virka....


 

Ég er í fýlu!

Í dag er ég í fýlu... og mig langar ekki að vera í fýlu.... ég var í góðu skapi þegar ég vaknaði en eitt símtal náði að rústa deginum.
Rosalega er erfitt að hætta að vera í fýlu þegar maður er í fýlu.
Stundum langar mig bara í starf þar sem ég þarf ekki að hafa samskipti við annað fólk.


Wednesday, April 20, 2005 

Princess Consuela Bananahammock Páfi

Djöfull finnst mér þetta páfamál geggjað.... nýji páfinn 78 ára oldie eflaust til í slaginn gegn smokkum og öðrum óþarfa.
Ég hugsa oft, þegar ég er að rífast við einhvern um trúmál eða hlusta á spekinga eins og Gunnar í Krossinum eða Snorra í Betel, hversu gaman verður þegar að maður deyr og getur hlegið að liðinu sem endalaust fordæmdi fólk til helvítis fyrir eitthvað sem þeir voru sannfærðir um að væri synd....
..... Ég sé þetta fyrir mér, Páll Óskar og Gunnar í Krossinum side by side að tjilla í heaven.

Önnur pæling, hvaða nafn mynduð þið taka ykkur ef þið væruð páfi?
mér finnst nafnið sem Pheobe valdi svoldið gott.... Princess Consuela Bananahammock.


Tuesday, April 19, 2005 

Áttu brauð?

Ein sit ég í vinnunni og týni núðlur af lyklaborðinu mínu (var neblilega að vinna og borða) hlusta svo á Euróvisjónlagið og Beyonce til skiptis á fm... verður lífið eitthvað betra?

Annars ætlaði ég bara að birta brandara handa ykkur elskurnar mínar...sem ég er búin að vera í hláturskasti yfir síðustu tvo daga..... fékk hann sendann á meili og ég sé öndina svo innilega fyrir mér að það er frábært.

Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei".
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei".
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei við erum ekki með neitt brauð".
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei, við erum ekki með neitt fjandans brauð hér"!
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "NEI! Eru heyrnarlaus eða hvað!? Við erum ekki með neittdjö****** brauð hér! Ef þú spyrð mig einu sinni enn þá negli ég helv***gogginn á þér fastan við barborðið, óþolandi fáviti"!!
Önd: "Áttu nagla"?
Barþjónn: "Nei".
Önd: "Áttu brauð"?


HAHA HA HA HA HA


Sunday, April 17, 2005 

Það sem maður man ekki telst ekki með!

Ohhh muniði þegar ég var 25!
ég er búin að vera rosalega upptekin við að afmælast og syngja í singstar.... búið að vera ógeðslega gaman... Svaka partý í 101 í gær... vantaði bara hana Rósu mína í singstarið en Didda frænka hennar bætti það allt upp með rosalegu keppnisskapi....
...úff svo ætla ég ekkert að fara útí það nánar hvernig djammið var....lesið bara titilinn.

takk fyrir afmælisgjafirnar og hamingjuóskirnar allir saman.


Tuesday, April 12, 2005 

Smá viðbætur

... var aðeins að laga listann hérna til vinstri... vantaði á hann nýja litla krílið sem hún Ýr var að eignast og svo Sölku hans Hrannars.... svo bætti ég líka fjarskyldu systur minni henni Lilju sem ég kíki svo oft á..... á samt ennþá eftir að kíkja betur á þennan lista og bæta inn liðinu sem maður er alltaf að kíkja á.


 

Afmælisvikan ógurlega

... í dag er annar dagurinn í röð sem að einhver heldur að ég eigi afmæli....

.... fékk símtal í gær frá Maríu vinkonu sem hélt að ég ætti afmæli og svo í morgun þegar ég mæti í vinnuna þá er pakki á skrifborðinu mínu frá vinnufélögunum sem héldu að ég ætti afmæli í dag...... ég á ekki afmæli fyrr en á fimmtudag þannig að haldið í pakkana ykkar þangað til þá!
já nema ef einhver vill gefa mér köku á morgun þá á ég afmæli eiginlega alla daga í þessari viku.... það er ekkert svo leiðinlegt.


Saturday, April 09, 2005 

Newsflash

Stundum leiðist mér í vinnunni, núna er stundum!

Mig hlakkar svo mikið til þegar að það kemur maí og ég þarf ekki að vinna um helgar....
Ég er farin að pæla svoldið í því í hvað ég eyði tímanum, vegna þess að maður á víst takmarkað mikið af honum og ef maður hugsar tilbaka þá hefur maður eitt óteljandi klukkustundum í einhverja vitleysu og þann tíma fær maður ekki tilbaka.....
Til dæmis tel ég sjónvarpsgláp ekki sem tímaeyðslu þó svo að ég hafi eflaust eytt meiri tíma í að horfa á sjónvarp um ævina en að sofa..... svefn finnst mér heldur ekki tímaeyðsla.... að bíða einhversstaðar er algjör tímaeyðsla, það er örugglega búið að stela frá manni nokkrum dögum með því að láta mann bíða eftir þessu og hinu.
Vinna um helgar flokkast hjá mér í algjöra tímaeyðslu... maður horfir á klukkuna allan tímann, verður ekkert almennilegt úr verki af því að maður er að bíða eftir að komast út....

Ok þetta var röfl dagsins....

Og þá eru það fréttirnar úr 101
... Nágrannar mínir eru eitthvað að böggast út í hvorn annan, Óli vill ekki leyfa Þorsteini að grafa fyrir bílskýli....
... Sjónvarpsstjarnan við hliðina á mér virðist vera hætt að nota bláu flíspeysuna sína, allavega er ég búin að sjá hana tvisvar í röð í einhverju öðru að ofan...
... Ástfangna stætóparið er ekki enn hætt saman, en þau hafa þróað nýja tækni þar sem þau eru farin að geta veifað lengra...
... Allt að tæmast í M&M, bráðum verður eingöngu að verslað í Þingholtsbúðinni...
... Kötturinn minn hefur ekki stolið neinu í næstum tvær vikur (síðasta sem hann stal var kóróna með loðskrauti)


Wednesday, April 06, 2005 

Hún á afmæli í dag!



Þetta er hún Rósa, hún er 26 ára í dag 7.apríl.
Til hamingju með daginn dúllan mín!
Endilega kíkið á
síðuna hjá skvísunni og sendið henni haminguóskir.


Tuesday, April 05, 2005 

Hvernig brauð ertu?

Ég ákvað að gera smá könnun á vinnufélögunum í dag og hefur henni verið tekið einstaklega vel þrátt fyrir að hún jaðri við líkamsárás, ég neblilega ákvað að tékka á því hvort þeir væru rúgbrauð eða fransbrauð..... so far er ég búin að finna eitt rúgbrauð og 3 fransbrauð....

maður verður að hafa þessa hluti á hreinu ......


Monday, April 04, 2005 

Mánudagsbömmerinn...

Oj hvað þetta er eitthvað leiðinlegur dagur.....
.... eins og helgin var alveg hreint fín þrátt fyrir alltof mikil fjárútlát á pöbbum hundrað og eins.

Við Svanhildur kíktum á Nasa á laugardagskvöldið og sáum Hjálmar.... vorum reyndar svo edrú á þeim tímapunkti að við hlógum að fullu fólki á dansgólfinu sem var ýmist grenjandi eða dettandi í gólfið og pirruðum okkur á einhverjum manni sem var einhvern veginn alltaf fyrir okkur, hann virtist ekki sjá okkur þó svo hann stæði næstum ofaná mér.... ég beið eftir því að hann myndi hengja jakkann sinn á mig.
Eftir að bjórarnir urðu fleiri þá breyttumst við í hollenskar systur, Matthildi og Rakel sem fluttu til Íslands fyrir 9 árum og við reyndum það sem við gátum að blekkja unga íslenska pilta (já og tælending) með því að tala vonda íslensku með hollenskum hreim.... bölvuðum svo sjálfum okkur fyrir að hafa ekki sagt breskar eða bandarískar, hefði verið einfaldara plat.

Áður en við fórum heim náðum við að sjá eitt það viðbjóðslegasta sem ég hef séð um ævina....
við vorum sem sagt inná kvennaklósetti að bíða og þá staulast ein blindfull út af einum básnum og það mætti halda að gellan hafi slátrað 10 kindum með skitu þar inni..... klósettsetan brotin og allt út úr ég veit ekki hverju... blöndu af blóði, pissi, slími og skít eða e-h....... *hrollur*

Ég ætla að skilja ykkur eftir með þessa indælu tilhugsun....

Já svo má geta þess að ég er einstaklega hamingjusöm á Gullvagninum hennar Rósu þessa vikuna....... skvísan skellti sér neblilega til Akureyri og skildi kaggann eftir í pössun í 101....
......hann hefur það bara gott Rósa ef þú lest þetta og ert farin að hafa áhyggjur :)


Saturday, April 02, 2005 

Pæling

Ryan Seacrest = Rúnar Sjávartannkrem ?