Ferskar Hnetur og fræga fólkið í framkvæmdum
Sunnudagur kl:11:16.....og ég þarf að mæta í vinnu kl:13:00
best að blogga smá til að drepa tímann, sit inní stofu í heimilisfötunum* og hlusta á Nylon á popptv...maður ætti kannski að teygja sig í fjarstýringuna??
Það tekur mig ekki nema svona hálftíma að sturta og græja mig fyrir vinnuna, veit ekki af hverju það ætti í raun að taka 2 tíma því ég þarf alot of work til að nálgast það að verða sæt.... en eftir hálftímann þegar ég er búin að klæða mig, greiða og mála* þá dettur mér ekkert fleira í hug til að bæta ástandið á mér.... maður ætti kannski að fara á e-h námskeið.
Helstu fréttir gærdagsins voru að Sigrún og Leifur hennar Svanhildar eignuðust 3ju stelpuna sína í gærmorgun... fékk gælunafnið Hneta frá Hrefnu stóru systir sinni.
VELKOMIN Í HEIMINN HNETA! (it sucks you're gonna love it)
Annað í fréttum úr 101 er að sjónvarpsstjarnan við hliðina á okkur er að taka í gegn eldhúsið hjá sér og brakið er farið að flæða yfir í garðinn okkar... sé bara iðnaðarmenn þar, familýan hefur líklega farið á hótel meðan á framkvæmdum stendur... það er bara almúgafólk eins og við Svanhildur sem búum á staðnum á meðan það er engin baðaðstaða nema sundlaug Rvk og klósettið sem maður notar er á barnaspítalanum....
Jæja þetta voru fréttir sunnudagsins... have a nice one :)
* heimilisföt= fötin sem bíða eftir manni við hurðina þegar maður kemur heim úr vinnu.....joggingbuxur úr Zöru sem maður er aldrei of feitur í, skræpóttir sokkar og Metallicabolur sem var keyptur fyrir utan Egilshöll í sumar 13 númerum of stór því öll önnur númer voru búin.
*mála= litað dagkrem frá Nivea og maskari (3ja mínútna verk)
Lag dagsins er Mr.Dolly með Brain Police því ég vaknaði með það á heilanum.