... já helgin var svona líka fantafín!
Föstudagskvöldið barasta ágætt.... reyndar svoldil þreyta í gangi þannig að það var bara glápt á Idolið og farið svo frekar snemma í háttinn.... við gláptum nú reyndar líka á Idol þáttinn síðan í síðustu viku og jesús hvað gaurinn með blingið í eyrunum er myndarlegur... ég ætla að vera fyrst til að spá honum yfirburðasigri!
(ég held meira að segja að hann geti sungið...annars var ég meira að horfa en hlusta)
Afmælið var frábært! spjallað og spilað Friendsspilið sem við héldum að sjálfsögðu að væri skítlétt.... en það reyndist svo vera drulluerfitt en gaman.... hápunktur spennunnar þegar Rósa lék Chandler í kassa....he he...
Það kom svo ansi fínn leigari að sækja okkur og skutla heim eftir að hver var búin að drekka
ca. 2 léttvínsflöskur og allir orðnir mollý...við prufukeyrðum hugmyndina af 16", 4ra bjóra töskunni við leigubílstjórann og honum leist held ég bara vel á... þá er bara spurning að skella henni í framleiðslu
(ég man samt ekki alveg hver tilgangurinn með henni var)
Margariturnar voru STERKAR og prumpið lyktaði illa.... en annars fór millipartýið bara vel fram.... back in the day stemmning á mér og Lilju systir... ákveðið fyrr um kvöldið að það yrði ekki hætt að djamma fyrr en klukkan væri orðin 8 og til þess að engin myndi nú slysast til að gleyma hversu mikið var búið að drekka þá fengu allir límmiða í andlitið eftir hvern drykk, og þá erum við ekki að telja léttvínsflöskurnar sem búið var að drekka með, enda hefði ekki verið pláss fyrir svo marga límmiða því ekkert af okkur er með sérstaklega stórt andlit.....
aldrei að vita nema ég skelli inn nokkrum myndum seinna
Göngutúrinn í bæinn gekk bara vel... komumst reyndar ekki langt áður en að hjónakornin, afmælisbarnið og hennar ektamaður urðu svona rosalega þreytt og ákváðu að skella sér heim eftir fjörugar rökræður á götum úti
(hundar og kettir hefðu orðið stoltir)... til að gera ferðina meira grand var ákveðið að splæsa í sitthvorn taxann...
2 systur eftir í stuði + Rósa og Svanhildur...... við skvísurnar skelltum okkur á Vegamót þar sem
var tjúttað á dansgólfinu.... næst síðasta systirinn fór heim þaðan vegna þreytu.
Klukkan farin að nálgast 6 þannig við héldum áfram að dansa til að gleyma, drekka til að gleyma osfrv...
Á leiðinni heim um 7 leytið rákumst við á týndan breta sem Rósa tók uppá arma sína á meðan að Svanhildur fann gamlan bekkjarfélaga sem við þurftum að sjálfsögðu að bjóða í eftirpartý...
Bretinn var ekki alveg að muna hvað hann hét eða hvert hann var að fara var ekki með jakka, skilríki, og enga peninga eða síma en mjög dularfullt plastkort sem eflaust hefur gengið að e-h hótelherbergi í borginni... eftir síðustu slagsmál næturinnar ákvað ég sem síðasta systirinn að komið væri að því að ég hlypi heim að elda súpu.... sem ég gerði!
Beið í þónokkra stund ein heima á meðan hitt partýfólkið kom vesalings bretanum til löggunnar og kom svo heim í súpu og hvítvín.... enda klukkan ekki nema rétt rúmlega 7 og díllinn var að drekka til 8!
Við hringdum aðeins í hina og þessa þegar við komum heim.... sorrý Nína mín :o/
Eftir símtal á sjóinn var glápt pínulítið á morgunteiknimyndirnar í kassanum áður en farið var í háttinn.....
Í gær fékk Rósa það hlutverk að skúra límmiðana af gólfinu sem ég efast ekki um að hafi verið skemmtilegt...
...úff þriðjudagur í dag og árshátíð næstu helgi... kannski að maður sleppi límmiðunum þá og dansi bara með tárin í augunum
TIL AÐ GLEYMA!