]]>

Tuesday, November 30, 2004 

Thinspiration - varúð ekki fyrir viðkvæma!

Var einhver að horfa á stöð 2 í gær?
Ég var að horfa á e-h þátt þar í gærkvöldi um matarvandamál.... ein kona sem borðaði bara í svefni og e-h vesen og fullt af fólki sem var alveg að tapa sér í alls konar matarveseni... svo var verið að sýna síður eins og þessa.... það er víst allt fullt af þessu á netinu, hugsið ykkur hvað þú hlýtur að vera orðin sjúkur til þess að finnast myndirnar eins og sýnt er á þessum síðum inspirational... eða thinspirational eins og pro-ana liðið kallar það!
Það er svo sem ekkert skrítið að fólki fer að finnast þetta eðlilegt ef sýningarstúlkur líta út eins og þessar.

Elín... ánægð með aukakílóin í dag!


 

Grúppía Íslands

Síðasti dagurinn í Húsó liðinn og ekki laust við að maður sé svoldið meloncolly.. vonandi að nýja vinnan skjóti bara af mér sokkana eins og kanarnir segja.

Helgin var vægast sagt fín.... tónistarhelgi enn eina ferðina, Grand Rokk er barasta orðin nýji Vegamót þrátt fyrir sjoppulegheit á neðri hæðinni þá bara gleymist það þegar farið er á jafn fína tónleika og á laugardag.... á föstudag var kíkt með útlendinginn hennar Karen á hljómsveitina Ég... söngvarinn var víst með fínan rass að sögn Karenar en ég var ekki alveg að kaupa þetta... helvítis Eiðs Smára lagið búið að vera fast í hausnum á mér síðan á föstudag...

Laugardags tónleikarnir heldur betri... Hoffman áttu kvöldið þó svo að Botnleðja, Let it burn og Ceres4 hafi alveg verið að standa sig.... Ceres fékk náttlega fleiri punkta fyrir netabolinn og kurteisina við barinn en tónlistina.

Sunnudeginum var síðan eytt í barnaafmæli í Kópavogi....ekki að spyrja að því að hún systir mín kann alveg að halda afmæli... maður þarf ekki mat i 3 daga eftir veislu hjá henni.

já og annað merkilegt sem gerðist um helgina var að ég sá Idolkærastann minn fyrir utan Prikið... hann er voða sætur svona life...
Nú er mál að fara í háttinn og komast í HTH mode fyrir miðvikudaginn.



Friday, November 26, 2004 

Gleðilegan Föstudag!

Jæja komin föstudagur og 2 dagar eftir í vinnunni gömlu...

Þetta gerðist í vikunni:
... ég eignaðist e-h ógeðslegan stalker í gær sem er búinn að hringja 3svar í mig í dag í vinnuna því hann vill mitt faglega álit á hvort að rauðyrjótt borðplata passi nú ekki við nýju birkiinnréttinguna hans.... já og svo bara til að tjatta, eins og hann orðaði það.

... ég var kölluð femínisti í vinnunni því ég er ekki hlynnt dauðarefsingum og fannst hallærislegt að byggingarvöruverslun væri að selja jóladúkkur for adults only.

... keypti mér nýja skó svo ég verði ekki blaut í fæturna í slyddunni.

... strætóbílstjóri kvartaði yfir því hvað ég væri í dökkum fötum.

Plan helgarinnar er svo sem ekkert sérstakt, borða á Vegamótum í kvöld, kíkja svo á Karen og þýska au-pairinn á e-h pöbb... í fyrramálið er svo síðasti laugardagurinn í Húsó, ég ætla að reyna að vera ekki of góð við fólk, heldur klára allar afgreiðslur á staðnum.... yeah right!

Á sunnudag á svo Óliver krúsídúllu frændi minn afmæli, hann ætlar að verða 1.árs... ég verð nú að segja að ég er sár og svekkt út í móður hans þar sem hún er ekki enn búin að bjóða mér í afmælið... veit ekki hvort ég hafi verið shunned eller hvad??
(Lilja feel free to comment)





Wednesday, November 24, 2004 

Have you seen miss Jones?

.... gleymdi að segja frá aðalatriðinu!
Ég fór á Bridget á föstudagskvöldið í boði Kidda mágs.... og ómæ god hvað myndin er frábær, svo sem ekki stórar fréttir að hún sé tuttugu sinnum betri en fyrri myndin því bókin var náttúrulega bara skrilljón sinnum skemmtilegri.
Ég hélt nokkrum sinnum að ég myndi pissa á mig úr hlátri, langaði líka til að gráta því Colin Firth var svo sætur....

Hápunktur myndarinnar eru slagsmálin í gosbrunninum!

Ég mæli líka með soundtrakkinu þar sem Idolgaurinn frá Bretlandi tekur Sade lagið Your love is king..... shcnilld!


 

This just in..

ok nýjustu fréttirnar glóðheitar í hús!

Það hefur nú ekkert verið brjálað að gera í 101 síðustu daga, ég bara búin að vera eins og gömul lumma sem kann ekkert að blogga.... búin að vera að klára restarnar í vinnunni og get farið að ganga bráðum aftur með höfuðið hátt.
Nýja vinnan byrjar á þriðjudag og ég er að reyna að fara yfir mentalchecklistann yfir hvernig ég þarf að fara að haga mér.... númer eitt á listanum er að hvíla hvítlaukinn í matseldinni þannig að ég verði ekki nýja stelpan sem stinkar.... númer tvö er að hætta að blóta og segja klámbrandara í vinnunni... númer þrjú að hætta að kalla yfirmanninn minn tælover.
Ef ég hef þetta í huga þá gæti verið að ég fengi fastráðningu eftir þrjá mánuðina.

Rósa mín e-h að kvabba yfir fréttaleysi, jú og það virðist nú vera e-h gúrkutíð í 101.... kannski er það bara það að maður hefur ekkert verið að tjútta ...... helsta sem gerist er e-h í sambandi við þessa fjárans ketti sem virðast ætla að tröllríða öllu, ég var að leita að fjarstýringunni í gær þegar ég sat uppí stofu og kíkti undir sófa og fann enga fjarstýringu en 1 stk kettlingur starði á mig undan sófanum.... ég þurfti að lyfta sófanum upp á meðan Svanhildur skúbbaði kettinum út um gluggann....
Annað merkilegt sem gerðist var að ég sá vettling á gólfinu sem ég hélt að væri harðfiskur.

Ok thats all from the newsroom today!
Back to you Stone Phillips.



Tuesday, November 16, 2004 


Didda reporting for birthdayduty!


 

Nennisiki.

Blogg er eins og vindurinn.... bara kemur og fer!

Eina ástæðan fyrir því að ég nennti að hafa fyrir því að logga mig inn og skrifa nokkrar setningar er að hún Didda mín á afmæli í dag og ég ætla nú bara að óska henni
Til hamingju með daginn!

Annars var ég að fatta að ég á eftir að vinna í Húsasmiðjunni í 10 daga og er að fara á límingunum að klára allt sem ég þarf áður en ég læt mig hverfa...... Shjitt!


Saturday, November 06, 2004 

On a mission

Tékkið á þessu!


 

Tón Lyst

Alveg sérdeilis fínn laugardagur til þessa.... vaknaði rétt fyrir hádegi...við Svanhildur röltum svo á laugarveginn og stoppuðum í Bagel Company og fengum okkur hádegismat, alveg pottþétt að maður fer þangað aftur.

Röltinu halfið áfram og kíkt í búðir... þar á meðal versluð ein jólagjöf handa Lilju systir.... skrítið það er bara nóv og ég er búin að kaupa tvær jólagjafir, ég held þetta hafi barasta aldrei gerst áður.

Smekkleysu tónleikar með Ske og Jan Mayen klukkan þrjú... frábær bönd, já reyndar er ég nú hrifnari af Ske uppteknum heldur en live.... tónlistin skilar sér e-h vegin ekki hjá þeim svona live.... en JM eru algjörir snillar, þvílíkt þéttir og lögin og textarnir frábærir.... þarf að eignast diskinn þeirra..... langaði næstum að kaupa hann áðan en þjófur eins og ég skellir sér á bókasafnið á morgun til að athuga hvort hann sé ekki þar ókeypis :/

Í kvöld ætlar Rósa svo að heiðra okkur með nærveru sinni, hún getur ekki haldið sig frá 101 eftir að hún prófaði...he he... og við ætlum að kíkja út að borða á RossoPommoDoro klukkan níu... vonandi að þeir standi sig þar í þjónustunni í kvöld, hef einu sinni farið áður og maturinn var rosa góður en þjónustan fáránleg, e-h tuttugu manns að vinna og aldrei neinn sem gat aðstoðað mann... anywho prófa aftur í kvöld.




Thursday, November 04, 2004 

ÚT úr skápnum fávitinn þinn...

Það á að skjóta hjón/pör sem þurfa að nota afgreiðslufólk til að útkljá sín vandamál....
...ég man varla eftir hjónum/pari sem ekki rífst já eða allavega pirrast e-h út í hvort annað þegar ég er að afgreiða þau með fataskápa í hjónaherbergið...
Það hafa neblilega orðið merkilegar breytingar í fataskápamálum síðustu misserin... kallarnir allir farnir að vinna í bönkum og þurfa óteljandi slár fyrir jakkafötin á meðan að kellingarnar væla yfir því að það séu ekki nógu margar skúffur fyrir nærfötin! Svo horfa þessir blábjánar á mig og vonast til þess að ég standi með öðru hvoru í rifrildinu.

AAARRRGGHH! er allt sem ég get sagt í dag...
ef þú ert hjón/par og ert að lesa þetta og ætlar e-h tíman að kaupa þér fataskáp í hjónaherbergið með þínum ekta manni/kvinnu þá skaltu drullast til að ákveða innvolsið heima svo ég þurfi ekki að hlusta á þín vandamál.
Ég er tækniteiknari með engan áhuga á hjónabandsráðgjöf.


Wednesday, November 03, 2004 

Danskir dagar

Ég skrapp í hádeginu í dag að skrifa undir ráðninguna og hitta nýju vinnufélagana... líst barasta vel á... nema kannski að ég þarf að shoppa mér smá föt fyrir vinnuna, meira hvað allir eru vel dressaðir þarna...

Ég var svo heppin og óheppin að það eru danir frá höfuðstöðvunum í heimsókn og ég hitti einn... hann sagði: Hej, jeg er Karsten
og ég tók í hendina á honum og sagði: Jeg er Elín
á meðan ég hugsaði: Du er so söd.

Merkilegt ég held ég hafi aldrei áður lent í því að hugsa á dönsku.

Afsakið dönskuna mína


Tuesday, November 02, 2004 

Ný vinna - ný úlpa

Já ætli grasið sé ekki bara grænna hinum megin, eftir miklar sálarkvalir hef ég ákveðið að skipta um vinnu og byrja þar von bráðar.... ég er nú bara orðin frekar spennt fyrir þessu enda komin með nett ógeð á raftækjum sem fylgja núverandi vinnunni minni...
Versta við þetta er að missa vinnufélagana sem eru náttúrulega bara snilld í Húsó, við sjáum hvað setur hinum megin... getur svo sem verið að það sé e-h af sniðugu fólki á nýja staðnum.
Enda skulda ég henni Rósu minni að skipta um vinnu eftir að hún beið eftir mér í 3 tíma í viðtali.

Nú er það bara að hlaupa um eins og hauslaus kjúklingur í allavega mánuð og græja það sem þarf í gömlu vinnunni.

Annars er það helst að frétta í 101 að stöð 2 er órugluð... e-h kettlingur er alltaf að sniglast inn og éta kattamatinn... ég er búin að kaupa mér nýja úlpu þannig að þennan vetur á ég eftir að geta rennt upp... já og svo er ástin mín sem ég veit ekki hvað heitir ekkert búin að hringja! (kannski ekki furða þar sem hann er ekki með númerið, en common make an effort!)

thats it