]]>

Thursday, September 30, 2004 

Fræga fólkið, timbur og spítalar

Rosalega finnst mér skítt af henni Juliu Stiles að láta ekkert sjá sig, ég meina gellan þykist nú vera nágranni minn þarna í Þingholtunum og hún getur ekki einu sinni bankað uppá!
Forest Whitaker á nú líka að vera þarna e-h staðar en nei nei hann lætur ekki heldur sjá sig.... kannski að maður ætti að hringja í Balta og biðja hann um að gefa stjörnunum frí svo þær geti verið out & about í 101.

Annars er það nýjasta að frétta hjá mér í 101 að það féll tré í garðinum hjá mér í óveðrinu þarna á aðfaranótt laugardags.... eins gáfuð og ég er nú þá tók ég barasta ekkert eftir því að risastórt (og ég meina RISA) tré væri liggjandi þarna þvert yfir garðinn fyrr en Svanhildur kom heim frá Danmörku á mánudag og benti mér á það.... :/ Það kom svo e-h garðklippumaður og reddaði málunum í gær og nú er aftur hægt að sóla sig í makindum í garðinum.... já eða þannig sko.

Rósa mín er að koma að vinna í bænum í 6 heilar vikur á spítölum borgarinnar VEI VEI!!!
Hún ætlar meira að segja að reyna að gista hjá okkur Svanhildi ef kötturinn drepur hana ekki, mér og öðrum ætti að líða betur vitandi að þessi gæðakona skuli standa vaktina á spítalanum.... loksins er manni óhætt.





Sunday, September 26, 2004 

Aldrei aftur..

bústaðaferð á Flúðir.....sjitt....furðulegustu hlutir gerast, hlíðarnar á Flúðum alveg merkilega líkar Öskjuhlíðinni.

Það sem gerist í bústaðnum verður bara eftir í bústaðnum skulum við segja.


Thursday, September 23, 2004 

ER..

..Sidney Bristow ekki bara mesta skutla í heimi?
Djísus þessir þættir eru best geymda leyndarmál í íslensku sjónvarpi..... Ég held ég þekki alls um 4 sem horfa á þessa þætti en kannski ca. 100 manns sem horfðu á Joe Millionare, djöfull er það súrt, ég er að spuglura í að kaupa mér allar seríurnar á dvd og horfa á þær aftur, lána svo öllum sem ég þekki.

Núna halda ábyggilega allir að ég sé alger sjónvarpsfíkill þar sem allt sem ég tala um eru sjónvarpsþættir og það er sko alveg rétt ágiskun ég er sófakartafla og er stolt af því.... því miður fylgdi nú samt þeirri unun að flytja í 101 einnig missir, það var eins og einhver hefði skorið úr mér hjartað.... ég er ekki með skjá 1! BARA RÚV!
Sem sjónvarpsfíkill er ég yfirbuguð af sorg, ég er búin að horfa á skjá 1 síðan að þeir endursýndu Dallas for crying out loud.... kannski að maður skelli sér bara á prjónanámskeið þar sem ég hef ógurlega mikinn frítíma á kvöldin.


 

Bara...

...svona til að hafa þetta á hreinu, þá var ég EKKI að gramsa í ruslinu eða handfjatla einhverja útpissaða stiku, heldur voru bara umbúðir í vaskinum :)


Wednesday, September 22, 2004 

Hver á barnið??

Hvað haldiði að ég hafi rekist á inná dömuklósettinu í vinnunni í dag?


 

BINGÓ!

... og þau kyssast undir flugeldunum, hvern hefði ekki grunað að Ed myndi enda með Carol?
af hverju á maður ekki svona rómans? (já eða rómans yfir höfuð) Einhver sem kemur í svona stálriddarabúning og gefur manni blóm, eða skutlar vöfflum í gluggann hjá manni???

Þegar maður er búin að vera á lausu þetta lengi og horfa á svooo margar rómantískar gamanmyndir þar sem rómansinn hreinlega hrífur fólk á flug er ekkert skrítið að maður hætti sér ekki í samband með lúðunum sem slefa bara á öxlina á manni á tjúttinu....
Er ekki bara málið að rómansinn er steindauður?


Tuesday, September 21, 2004 

Nú ætla ég að blogga...

Hmmm mér var að sagt að blogga svo ég blogga.
blugg bloogblooooog.... bara að prófa mig áfram með bloggið, þetta gengur allt svona glimrandi vel. (sjá að ofan)

Sko ég er búin að setja inn linka með smá hjálp frá Svanhildi, hún vildi kredit eða shoutout eða props.... Svanhildur I give you props !

Takk fyrir kommentið Nína mín, mér finnst ég nú vera orðin einhvers virði. Nú er bara að hvetja annað fólk að kommenta, til dæmis Svanhildi sem hangir á netinu í vinnunni alla daga...hmmm....
Annars lofa ég nú að segja e-h af viti fljótlega.


Sunday, September 19, 2004 

enn að vinna...

nú fer þessi dagur loks að taka enda, já og þurrkararnir að verða búnir.....halelúja!
Hvað er málið með íslendinga og raftæki? við bara verðum að eignast ÖLL raftæki sem til eru, endurnýja alla vega einu sinni á ári og guð hjálpi okkur öllum þegar þessi tæki fara á útsölu...

Mamma mín er yndislegust, hún var að hringja og láta mig vita að það er eitt stk lambalæri á leiðinni í ofninn.... Mmmmm...... munnur + vatn....
nú er bara að tékka hvort að einhver nenni að sækja mig í vinnuna, er nú þegar búin að eyða góðum klukkutíma í strætó í dag sem er skandall og ég hyggst fara með þetta lengra....
Ég mæli ekki með því að vinna í Kópavogi... það er bara grín.


 

vinna vinna vinna

símtöl sunnudagsins.....

...."já þurrkarinn sem þið voruð að auglýsa á 19 og 9 er hann með barka?"
ég: "jamms"
"og snýr hann í báðar áttir?"
ég: "jamms"
"Takk fyrir"
ég: "bless"

Ég elska helgarvinnuna mína!





Saturday, September 18, 2004 

Shitturinn titturinn..

Hvað þetta ætlar að verða flókið.... ég náði allavega að setja inn mynd.... ekki kannski myndina sem ég ætlaði að setja inn né á þeim stað sem hún átti að fara, en mynd none the less.

Ég er búin að biðja vinkonu mína glimmergelluna að hjálpa mér að skilja þetta bloggerí svo ég geti farið að verða cyberskvísa og bloggað hægri vinstri.
(sem dæmi um að ég er eiginlega byrjuð þá segi ég "blogg" í hverju bloggi, er það ekki annars bloggaralegt?)

Anyhú... ég var að spuglura í að halda áfram að reyna að finna e-h út úr þessu, kannski að ég geti bloggað linka á fólk og svona, og svo grátbeðið hina sömu að hafa link á mig...he he...

bless í bili

ps. mér finnst svoldið eins og ég sé að tala við sjálfa mig :/


 


Vígaleg....já já....mín kann á kúbeinið!
vei...mynd!


Friday, September 17, 2004 

Jæja darhlinks..

þá er það bara svoleiðis, byrjuð að blogga og fjör..... hmmm vá en gaman, vonandi að e-h nenni að lesa þetta hjá mér....
.....ætla aðeins að skoða optionsið svo kannski að maður bloggi meira...

hilsen E