]]>

« Home | Aldrei aftur.. » | ER.. » | Bara... » | Hver á barnið?? » | BINGÓ! » | Nú ætla ég að blogga... » | enn að vinna... » | vinna vinna vinna » | Shitturinn titturinn.. » | Vígaleg....já já....mín kann á kúbeinið!vei...mynd! »

Thursday, September 30, 2004

Fræga fólkið, timbur og spítalar

Rosalega finnst mér skítt af henni Juliu Stiles að láta ekkert sjá sig, ég meina gellan þykist nú vera nágranni minn þarna í Þingholtunum og hún getur ekki einu sinni bankað uppá!
Forest Whitaker á nú líka að vera þarna e-h staðar en nei nei hann lætur ekki heldur sjá sig.... kannski að maður ætti að hringja í Balta og biðja hann um að gefa stjörnunum frí svo þær geti verið out & about í 101.

Annars er það nýjasta að frétta hjá mér í 101 að það féll tré í garðinum hjá mér í óveðrinu þarna á aðfaranótt laugardags.... eins gáfuð og ég er nú þá tók ég barasta ekkert eftir því að risastórt (og ég meina RISA) tré væri liggjandi þarna þvert yfir garðinn fyrr en Svanhildur kom heim frá Danmörku á mánudag og benti mér á það.... :/ Það kom svo e-h garðklippumaður og reddaði málunum í gær og nú er aftur hægt að sóla sig í makindum í garðinum.... já eða þannig sko.

Rósa mín er að koma að vinna í bænum í 6 heilar vikur á spítölum borgarinnar VEI VEI!!!
Hún ætlar meira að segja að reyna að gista hjá okkur Svanhildi ef kötturinn drepur hana ekki, mér og öðrum ætti að líða betur vitandi að þessi gæðakona skuli standa vaktina á spítalanum.... loksins er manni óhætt.





E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|