]]>

Tuesday, May 31, 2005 

Staðreyndir dagsins

Ég er að fara í sumarfrí eftir 55 daga....
Ég hef ekki tekið strætó í 22 daga....
Ég er búin að vera edrú í 3 daga....


Wednesday, May 25, 2005 

Tvennt....

*Rosalega finnst mér pirrandi þegar fólk segir svefnibergi en ekki svefnherbergi.
(eins og Vala Matt gerir)

*Rosalega er gínan í glugganum á Jack & Jones í Kringlunni myndarleg...
(ég vildi að hann væri alvöru manneskja)


Tuesday, May 24, 2005 

Dagblaðið Vísir

Ég brjálaðist úr hlátri þegar ég sá í Fréttablaðinu í morgun að ein af fyrirsögnunum í DV væri um Palla Almars...
"Páll Hjarðar í ÍBV fótbraut þriðja manninn á ferlinum"
Eins og hann sé bara einn af svæsnustu handrukkurum Íslands.... djöfull er þetta mikill snepill.


Friday, May 20, 2005 

We aren't the champions!

Ég skrifa þessa færslu ennþá með grátstafina í kverkunum, maskara niður á kinnar og hárið úfið eftir dramatíkina á gærkvöldi.
Alveg eru þetta stórundarleg úrslit, eins og svo oft áður...... og ég sem hélt við myndum vinna! (eins og á hverju ári, nema í fyrra)
Eins ógeðslega ljótir og búningarnir okkar voru þá get ég nú alveg verið sátt við þá á miðað við suma aðra búningana í gær.

En ég er komin með uppskriftina að vinningslagi á næsta ári ... við fáum nýbúabombu með cleavage dauðans og jafnvel með hvoruga skálmina á buxunum til syngja fyrir okkur á tékknesku eða einhverju svipuðu máli og á meðan hún syngur þá þýðir hún að sjálfsögðu allt yfir á táknmál, sleppir 10 hvítum dúfum og trommar svo restina af laginu í sundlaug á meðan 14 fáklæddir dansarar dansa riverdance í kringum laugina.

...oh well ég allavega er farin að hrista þetta af mér og búin að kýla upp stemmninguna í vinnunni fyrir nýjum Júróvisjón veðmáli og er næstum klár fyrir morgundaginn.

Annars er það helst að frétta úr 101 að kötturinn minn elskar mig út af lífinu, þessi elska hafði fyrir því að kála fugli og draga hann blóðugann inn um gluggan á meðan að við biðum eftir úrslitunum í Júró í gær...... Svanhildur reyndar hoppaði uppí sófa og gólaði eins og kjelling á meðan að ég veitti aumingjans fuglinum útför við ruslatunnuna...... may he rest in peace!


Wednesday, May 18, 2005 

Hnébuxnasamfestingur?????

Ég bara trúi þessu ekki!


 

If I had your love!

Ohhh hvað ég er orðin spennt fyrir morgundeginum.... mér finnst meira segja rosa sniðugt að hafa svona forkeppni, tvöfalt júróvisjón á hverju ári.

Læt skemmtilegan link fylgja fyrir þá sem hafa áhuga..... Selma hæst á bigpoll!

Swiiiiiiiiiiiiiiing!


Monday, May 16, 2005 

Helgin...

...er nú bara búin að vera alveg ágæt.... byrjaði allavega vel á innflutningspartý hjá systu í Tröllateignum á föstudag, þar sem var sullað í rauðvíni og sungið í singstar langt fram eftir nóttu, við tók svo blesspartý hjá hinni systu sem ætlar að fara af landinu á þriðjudag og flakka um suður ameríku í 5 mánuði..... helvítans pjásan, ég er að drepast úr öfundsýki.... ja ég fæ allavega bílinn hennar í þann tíma þannig að ég fyrirgef henni næstum að bjóða mér ekki með.
.....restin af helginni var svo bara þynnka og meira rauðvín, svo er þetta bara búið á mánudegi kl:14 þar sem ég er mætt í vinnu og ætla að reyna að flýta e-h fyrir mér svo ég þurfi ekki að vinna öll kvöld í vikunni.

Já svo er það nýjasta í 101 fréttum að það er nákvæmlega ekkert að frétta af deitinu, gaurinn svarar barasta ekki meilinu mínu.... og nú er ég alveg ákveðin í því að ég skal sko hringja næst þegar ég býð einhverjum á deit.... ég er búin að vera að hugsa alveg eins og stelpa "kannski var hann bara veikur í síðustu viku" og e-h svona crap en ég held ég geti alveg offað það....

Ég horfi á alveg snilldar mynd í gær sem ég má til með að segja ykkur frá.... það var íslenska myndin Dís.... hún var eins góð og bókin var léleg... kveð ykkur að sinni með snilldarsetningu úr þeirri mynd:
"Ég á ekkert, nema afmæli"


Thursday, May 12, 2005 

Sagan ógurlega...

Alrætí, hérna kemur sagan af Elínu og deitinu..... mjög óspennandi lesning og pottþétt ekki með happý ending þannig að ég mæli með að stöðva lesturinn hér.

Þannig var það að ég kíkti út á laugardagskvöldið .... langt liðið á kvöldið og ég hitti "myndargaur við barinn... við spjöllum aðeins og hann bíður mér í glas, við setjumst niður í smá stund, þetta endar með því að við skiptumst á nafnspjöldum (vorum bæði með vinnuspjöldin okkar) og kveðjumst.

Einfalt og sætt ekki satt?
Ok ímyndiði ykkur nú ofangreinda sögu þar sem báðir aðilar eru frekar mikið í glasi og líkurnar á því að muna hvernig hin manneskjan leit út eða nákvæmlega um hvað var talað eru stjarnfræðilegar..... ekki alveg jafn rómó.....

Jæja allavega tek ég eftir nafnspjaldinu hans í töskunni minni á sunnudeginum, ég var nú ekkert að missa legvatnið yfir því og spáði svo sem ekkert mikið í því.... þangað til að ég ákveð að vera bara svoldið skvísa í gær og senda gæjanum meil sem hljómaði svona:

Hæ X og takk fyrir síðast...... Ég sit hérna í vinnunni og horfi á nafnspjaldið þitt og var að velta því fyrir mér hvort þig langaði til þess að verða svo heppinn að hitta mig á einhverjum óákveðnum stað, einhvern áókveðinn dag í nánustu framtíð?
Kv. Elín


Ok ég viðurkenni það að það hefði verið miklu flottara að hringja og spjalla við hann, en gefiði mér séns þetta er í fyrsta skipti sem ég reyni þetta.... ég hljóp reyndar á eftir snúrunni um leið og ég ýtti á send og gargaði CANCEL CANCEL..... en það virkaði ekki.

.... anyways so far ekkert svar!


Wednesday, May 11, 2005 

Cool chick!

Ég er svo óendanlega kúl í dag að það hálfa væri nóg!
Ég gerði neblilega eitt sem ég hef aldrei gert áður, ég bauð strák á deit!
Á DEIT!!!!!

Held ég haldi mig við þetta næstu vikur, að gera eitthvað svona nýtt.... maður lifir bara einu sinni ekki satt????


Tuesday, May 10, 2005 

10.maí

Hey hver man hvað átti að gerast 10.maí árið 2000????
((já fyrir utan að Óskar Jósúa á afmæli))


Thursday, May 05, 2005 

Karíus og Baktus

Ég er svo nýbúin að taka eftir því hvað mér finnst rosalega leiðinlegt að bursta í mér tennurnar.... alltaf þegar ég byrja að bursta þá dettur mér e-h í hug sem ég þarf að gera, greiða mér, þvo mér í framan, taka til í baðherbergisskápnum osfrv... þannig að það tekur mig yfirleitt um 15 mínútur að klára að bursta tennurnar á meðan ég geri alla aðra hluti með tannburstann í kjaftinum og tannkrem lekandi niður á höku..... svo fatta ég þegar mig byrjar að svíða undan tannkreminu..."já ég var að tannbursta mig"
Fór einmitt til tannsa um daginn sem sagði að ég þyrfti að vanda mig betur að bursta vinstra megin því ég bursta greinilega mjög vel hægra megin, ég hugsa að ég byrji sem sagt á hægri og finni mér svo eitthvað að gera þegar kemur að vinstri hliðinni....
....djöfull er maður furðulegur


Tuesday, May 03, 2005 

Ég elska gsm síma

Jibbí....
....þessi þriðjudagur var að batna til muna, eins og gærdagurinn var ömurlegur.... stórmerkilegt hvað eitt sms getur afrekað!


Sunday, May 01, 2005 

Vildi að ég ætti tímavél!

Ef ég ætti ekki dagatal þá myndi ég halda að það væri mánudagur eftir þjóðhátíð, þessi helgi var svo þvílíkt skemmtileg að núna langar mig bara að vinna við að vera á ráðstefnum.

Ég náði líka að networka svoldið á milli tequilaskotanna þannig að ég er komin með vinnu í DK, Portúgal, Kína og Póllandi..... mjög productive helgi.