]]>

« Home | Æsispennandi laugardagskvöld. » | Íbúð Lilju systir í Köben » | Hvað er að ske? » | Your Career Type: EnterprisingYou are engertic, am... » | Klukkedí klukk » | Lagfæringar og breytingar » | Franz at last » | Luddurnar mínar » | Uppfinningar Mallorca ' 05 » | Jæja snípóblogg númer 3.Tóta ætlar að keyra okkur ... »

Monday, September 26, 2005

Hefur einhver séð tvífarann sinn?

Ég hef tvisvar orðið fyrir því að vera að horfa á sjónvarpið og sjá mynd í auglýsingu sem hefði getað verið af mér.... stundum segir fólk “vá hvað þessi er lík þér” eða eitthvað svoleiðis og yfirleitt finnst mér það ekkert en það er rosalega skrítið þegar maður sér það sjálfur.
Í fyrra skiptið var einhver snyrtistofa að auglýsa andlitsböð og það var mynd af einhverri stelpu sem lá á borði með lokuð augun og maska á andlitinu og hún var bara nákvæmlega eins og ég, í hitt skiptið var verið að auglýsa Sirkus blaðið og það var viðtal við Brynju Þorgeirsdóttur og mynd af henni inní stofu hjá sér og hún var bara nákvæmlega eins og ég á þeirri mynd..... venjulega er ég nú ekkert lík henni.
Í hvorugt skiptið man ég eftir að hafa setið fyrir á þessum myndum.

Í gær talaði ég svo við Ellu vinkonu og hún sagði mér að Sammi maðurinn hennar hefði séð tvífarann minn á Höfn í Hornafirði um síðustu helgi, hún var reyndar dökkhærð en alveg eins og ég.

Prófaði að googla þessu áðan, mig minnti að það héti doppelganger á ensku en þá fann ég þetta.... ógeðslega krípí, ég er nú fegin að ég hef ekki séð doppelgangerinn minn


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|