]]>

Thursday, June 30, 2005 

Nostalgía


ohhh mig dreymdi svo skemmtilegan draum í nótt, í draumnum var gömul vinkona sem ég var bara búin að steingleyma.... Hyacinth Bucket! (borið fram bouquet að sjálfsögðu)

Hver man ekki eftir þessari frábæru snobbhænu?
Ég og Lilja systir horfðum á hana stanslaust í gömlu góðu daga.... það vantar meira breskt sjónvarp á Íslandi og hvíla aðeins amerískar froður og raunveruleikaþætti.....
Hvernig væri að fara að sýna : Keeping up appearances, Absolutely fabulous, Mr. Bean, Fawlty towers, Are you being served, Shooting stars og fleiri og fleiri.... kannski ætti maður bara að flytja!


............ef einhverjum langar að gefa mér gjöf þá er hún hérna


Monday, June 27, 2005 

Er þessi túnfiskur kjúklingur?

Jæja.... helgin bara fín en maður er nú alltaf fegin þegar að það kemur mánudagur.... a aha.

Á laugardag ætlaði ég nú ekki að kíkja á djammið, hvað er þá betra en að fá sér smá blush og nokkrar frozen margarítur og kíkja aðeins í bæinn?
Ég, Svanhildur og Didda sátum heima að sötra og um klukkan tvö tökum við eftir einhverjum skrítnum manni útí garði, hann var á fjórum fótum, svartklæddur með grímu og hjálm með ljósi á..... skreið um garðinn með risastóra fötu, svoldið freaky sjón, ég reyndi að taka mynd af honum en batterýið var búið.... hann hefur líklega verið að tína ánamaðka.....og við hugsuðum já hún Unnur á efri hæðinni þekkir hann líklega og hefur leyft honum að tína... fréttum svo daginn eftir að Unnur þekkti hann ekkert og maðurinn greinilega stundar það bara kl:2 á nóttunni, um helgar að fara í ókunnuga garða og skríða um eins og fáviti....
.....ef ég hefði verið ein heima þá hefði ég hringt á lögguna!

En mikið elska ég nýju sjónvarpsstöðina!!!! Sirkus er frábær!
(reyndar er allt sem er frítt frábært)
Sá The Newlyweds í gær sem er bara æðislegur.... hún Jessica er e-h svo mikið grey að maður vorkennir henni bara, það er bara of flókið fyrir hana að lifa.....
....vá þvílík vinna sem það hlýtur að vera að eiga svona konu.... vona bara fyrir hans hönd að hún sé allavega góð í rúminu.


Friday, June 24, 2005 


Ónei....
ég var að fatta að ég kann allan textann við To be with you með Mr. Big. .....og þegar ég skrifa þessa færslu átta ég mig á því að ég á heldur ekkert að vita hvað hljómsveitin heitir sem syngur þetta lag..... arrrrrrrgggghhhh!


Thursday, June 23, 2005 

Fjörug umræða hjá mér í vinnunni... langar að gera smá skoðanakönnun
(kann ekki að setja inn svona poll dæmi)

Fylgjandi eða andvíg dauðarefsingu?


 


Þessi stórglæsilega stúlka er 26.ára í dag!
Til hamingju með daginn Sigga mín...
........... endilega senda henni hamingjuóskir


Wednesday, June 22, 2005 

Í dag langar mig í....

....fyrstu bókina hans Ómars í Quarashi.... það er teiknimyndasaga um Óla Píku, strákur með fæðingargalla, píku í andlitinu.

.....þetta

....svona

og svo langar mig til þess að kynnast manneskjunni sem skrifar auglýsingabæklinginn fyrir Tiger, ekkert smá skemmtilegar lýsingar hjá henni/honum, ég er alveg viss um að sú persóna sé stórskemmtileg.


Monday, June 20, 2005 

Hæ hó jibbí jei!

Vá hvað 17. júní var svakalega skemmtilegur, bæði dagurinn og kvöldið.
Sól og blíða allan daginn, rölti í bæinn og svo héldum við Svanhildur garden partý fyrir fjölskyldurnar, kjúklingar grillaðir í massavís.... algjör snilld..... svo kíktum við aðeins á tónleikana fyrir framan stjórnarráðið.... hlupum svo heim og fengum okkur aðeins í tærnar.

Glimmergellan kíkti við alveg bláedrú og rölti með okkur fyllibyttunum í bæinn, á leiðinni hittum við þetta skemmtilega fólk sem þið sjáið hér til hliðar, 3 ameríkanar sem við tókum að okkur að sýna næturlífið... Laila, John og Adam... algjört snilldarfólk, þau voru bara í viku heimsókn á einhverju námskeiði, sem ég náði svo sem ekki alveg út á hvað gekk.

Þau þekktust heldur ekkert innbyrðis, heldur höfðu bara hittst um daginn og ákveðið að kíkja út og voru með lista frá einhverjum íslending yfir skemmtilega staði til að fara á.. Við kíktum yfir listann hjá þeim og hentum honum, sögðum þeim að koma með okkur þar sem við skildum sko sýna þeim bestu staðina, (sólon var reyndar svona detour..he he) það svínvirkaði og þau skemmtu sér alveg svakalega vel, ég fékk meira að segja e-mail frá Lailu daginn eftir þar sem hún sagði okkur hafa bjargað ferðinni hjá henni :)

Frábært þegar maður lendir á svona skemmtilegu djammi....


Thursday, June 16, 2005 

Jæja þá er komið að því, læra e-h nýtt á bloggernum...?
er að tékka hvort ég kunni að setja inn mynd með bloggi...
Bin Laden ertu þarna elskan mín?


Wednesday, June 15, 2005 

Brainfreeze

Vissuð þið að það er til fólk sem fær ekki "brainfreeze"?

....þið vitið svona illt í ennið ef maður borðar ís of hratt...... ég var að spjalla við vinnufélaga í hádeginu í gær og við komumst að því að það er ýmislegt sem maður hefur bara aldrei upplifað, ég hef til dæmis aldrei fengið brjóstsviða, ég hef ekki hugmynd um hvað það er þegar fólk talar um það..... hann hafði sem sagt aldrei fengið brainfreeze og aldrei orðið sjóveikur...
(reyndar aldrei fengið túrverki heldur en það var svo sem vitað)

í lok dagsins í gær keypti svo bossinn okkar ís handa öllum og ég var að reyna að láta umræddann vinnufélaga frá brainfreeze með að sýna honum hversu hratt maður þarf að borða ís til að það gerist.... ég lá bara í gólfinu og hélt um ennið á meðan að hann hélt áfram að borða.
............rosa skrýtið ég vissi ekki að þetta væri hægt....


Monday, June 13, 2005 

Ekki get ég skilið fólk sem nennir í skrúðgöngu..... skrúðgöngur eru eitt það leiðinlegasta sem ég veit.... hvað er skrúðganga annað en risastór biðröð?


 

Oj hvað er leiðinlegt að vera þunn á mánudegi....


Friday, June 10, 2005 

Nei gaman að rekast á þig...

Fyrir um tveim vikum var einn samstarfsfélagi minn í sumarfríi sem þýddi það fyrir mig að ég fékk að hafa fyrirtækisbílinn á meðan.
Ég keyrði þá alltaf í vinnuna á morgnanna og eins og bílastæðin eru þar sem ég vinn þá þarf ég að keyra bakvið húsið inn í frekar þrönga innkeyrslu og beygja svo strax til hægri og maður sér ekkert fyrr en maður kemur fyrir hornið hvort einhver sé að koma á móti manni.....
.......anyways þrjá daga í röð þegar ég mæti í vinnuna þá keyri ég næstum á sama gaurinn á fjallahjóli sem er að koma fyrir hornið, við bæði snarbremsum og náum að sleppa við að skella saman, sem betur fer því ég hefði ekki nennt að þrífa gaurinn af húddinu hjá mér.

Svo í gær þegar ég mæti í vinnuna þá eru lokuð þessi bílastæði á bakvið húsið þannig að ég legg
fyrir framan og labba bakvið þar sem starfsmannainngangurinn er, þegar ég kem fyrir hornið haldiði að ég labbi ekki beint í fangið á sama gaurnum sem hafði greinilega skilið fjallahjólið eftir þann daginn (hann hefur kannski fengið fyrirtækishjólið á meðan að e-h var í sumarfríi í vinnunni hans...ha ha ha)..... þvílíkur aulaskapur...... er eiginlega alveg viss um að gaurinn heldur að ég sé hitman bara out to get him!


Wednesday, June 08, 2005 

Ohh ég er svo mikið rokk og ról í dag!
Það var ekki til hárnæring í morgun þegar ég fór í sturtu....


Tuesday, June 07, 2005 

Nýjasta nýtt....

Haldiði að hún Ella eiginkona og ofurhúsmóðir sé ekki komin með bloggsíðu.... þið finnið hana undir linknum Lína 1 hérna til vinstri.....
Til hamingju með nýju bloggsíðuna Ella, vertu dugleg að blogga!

by the by síðan hennar heitir pollasokkar sem mér finnst algjört æði, sumir fatta það grín.


Monday, June 06, 2005 

Húð - kyn og tónlist!

Djíses.... muniði þegar ég var að monta mig á hvaða tónleika ég var að fara á í sumar?
......já haldiði að það sé ekki bara búið að fresta Franz og fella niður Velvet Revolver.
Er að spuglura í að kaupa miða á Foo Fighters og Queens of the Stone Age, en er viss um að þeir felli þá tónleika niður ef ég geri það..... held ég sé með e-h musíkjinx á mér.... eeeek.

Ok en ég ætla að segja ykkur sniðuga sögu, sem sumum finnst kannski ekkert sniðug but what the h***
Þannig er það nú að ég hringdi upp á húð og kyn í morgun til að panta í tékk....
.....já já ekki taka andköf.... auðvitað fer maður í tékk reglulega!
....og konugreyið sem ég talaði við hefur annað hvort verið glæný eða algjört prude... svona var samtalið:
Kona: Göngudeild
Ég: já góðan dag ég ætla að panta tíma í tékk.
Kona: ha? hvernig tékk?
Ég: nú kynsjúkdómatékk
Kona: Nú? er eitthvað að?
Ég: Nei ég held nú ekki, en maður vill nú vera viss.
Kona: já ok, ég á lausan tíma blah blah...
Ég: blah blah og segi nafn og kennitölu osfrv.
samtalið endar svo á því að hún hvíslar í símann..... heyrðu svo máttu ekki pissa í tvo tíma áður en þú kemur..... ég er líka viss að hún hefur sko litið til beggja hliða áður en hún sagði þetta....
svo þakkaði ég fyrir og kvaddi.

En hvað er málið?
...er svona svakalega mikið feimnismál að pissa í glas að starfsfólk húð og kyn þorir varla að taka niður pöntun á tíma?


Sunday, June 05, 2005 


Grillpartý í 101 á laugardag


Friday, June 03, 2005 

Tikk takk tikk takk

.............18 mínútur í ísskaldan Corona og grillaða kjúklingavængi.


Thursday, June 02, 2005 

If only

Þegar ég var ung var ég sannfærð um það að ég yrði e-h rosalega merkilegt þegar ég yrði stór...
t.d...friðarsinni að berjast fyrir réttlæti í heiminum, ég myndi byggja skýli fyrir heimilislaus börn með berum höndum, ná í vatn fyrir þyrsta, framkvæma lífgunaraðgerð á hætt komnu barni og bjarga lífi þess, hugga fjölskyldur sem ættu um sárt að binda þegar ástvinir þeirra deyja úr sjúkdóm sem hefði getað verið komið í veg fyrir með fjárveitingum....

.............í vinnunni minni í dag var ég spurð hvar klósettið væri.


Wednesday, June 01, 2005 

Sumar og Ostur

Jæja þá er komið sumar....
sumarheitið mitt (ef það er til svoleiðis) er að hætta að vinna á kvöldin til að redda skrifborðinu mínu sem er að sligast af pappírum..... nú ætla ég bara að sópa pappírunum í ruslið og setja upp sólgleraugun..... meira að segja kom ég á kerfi í vinnunni í dag þar sem við skiptumst á að fara heim fyrr í allt sumar.... sniðug!

Í vinnunni í dag áttaði ég mig á að ég er með alltof mikið af pet peeves...
það byrjaði þannig að við vorum e-h að taka til á kaffistofunni og það var svona matarafgangar í vaskinum eftir fólk sem hreinsar ekki af disknum sínum í ruslið áður en það skolar af þeim og ég þurfti að viðurkenna fyrir liðinu að ég gæti ekki tekið þetta uppúr vaskinum.... ég bara meika ekki svoleiðis....eeeuuch.
Í hádeginu keypti ég mér svo brauð og ost og e-h til að borða, geng svo frá ostinum MJÖG vandlega, vagúmpakka honum gjörsamlega í nýjan poka svo ég geti borðað meira af honum
(ég er sækó á ost)..... svo eftir hádegið þá stend ég e-h og er að blaðra þá sé ég einn vinnufélagann laumast í ostinn minn, rífa pokann sem ég hafði svo fyrir að koma honum fyrir í og
svo þegar hún náði loks ostinum úr pokanum þá plokkar hún í ostinn MINN með puttunum og fær sér svo sneið!!!
Ekki það að hún hefði ekki mátt fá sér, ég bara hefði viljað hafa umsjón með því.... ha ha ha....
djíses needless tú say þá þarf ég að henda helvítis ostinum á morgun, allavega borða ég hann ekki.....
...... er ég sú eina sem er svona geðveik á e-h?

okí að lokum þá var ég að bæta inn link á Guðnýju systir sem er að flakka um suður ameríku á meðan að ég carsitta Toyarann hennar.