]]>

« Home | Jæja þá er komið að því, læra e-h nýtt á bloggernu... » | Brainfreeze » | Ekki get ég skilið fólk sem nennir í skrúðgöngu...... » | Oj hvað er leiðinlegt að vera þunn á mánudegi.... » | Nei gaman að rekast á þig... » | Ohh ég er svo mikið rokk og ról í dag!Það var ekki... » | Nýjasta nýtt.... » | Húð - kyn og tónlist! » | Grillpartý í 101 á laugardag » | Tikk takk tikk takk »

Monday, June 20, 2005

Hæ hó jibbí jei!

Vá hvað 17. júní var svakalega skemmtilegur, bæði dagurinn og kvöldið.
Sól og blíða allan daginn, rölti í bæinn og svo héldum við Svanhildur garden partý fyrir fjölskyldurnar, kjúklingar grillaðir í massavís.... algjör snilld..... svo kíktum við aðeins á tónleikana fyrir framan stjórnarráðið.... hlupum svo heim og fengum okkur aðeins í tærnar.

Glimmergellan kíkti við alveg bláedrú og rölti með okkur fyllibyttunum í bæinn, á leiðinni hittum við þetta skemmtilega fólk sem þið sjáið hér til hliðar, 3 ameríkanar sem við tókum að okkur að sýna næturlífið... Laila, John og Adam... algjört snilldarfólk, þau voru bara í viku heimsókn á einhverju námskeiði, sem ég náði svo sem ekki alveg út á hvað gekk.

Þau þekktust heldur ekkert innbyrðis, heldur höfðu bara hittst um daginn og ákveðið að kíkja út og voru með lista frá einhverjum íslending yfir skemmtilega staði til að fara á.. Við kíktum yfir listann hjá þeim og hentum honum, sögðum þeim að koma með okkur þar sem við skildum sko sýna þeim bestu staðina, (sólon var reyndar svona detour..he he) það svínvirkaði og þau skemmtu sér alveg svakalega vel, ég fékk meira að segja e-mail frá Lailu daginn eftir þar sem hún sagði okkur hafa bjargað ferðinni hjá henni :)

Frábært þegar maður lendir á svona skemmtilegu djammi....


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|