]]>

Monday, July 25, 2005 

Me querer combinato



Það er sko tímastilling á nýju myndavélinni minni og þannig er hægt að fá svona good time mynd eins og sést hérna til hliðar....

Grillið á föstudag heppnaðist bara fruntavel.... helvíti gaman hjá okkur þótt við hefðum ekki náð að borða eftirréttinn.... sögur af gömlum kjellingum í kveikjarakaupum og týndum ferðamönnum í ýmsum borgum heims.....já og húsafelli.... ha ha ha....

Valli á heiðurinn af því að vera á fyrsta vidjóskotinu á nýju vélinni, nú þyrfti ég bara að kunna að setja það hérna inn, því það er helvíti fyndið þótt við hljómum bæði eins og bavíanar. Hvað er svo skemmtilegra en smá samkeppni? Við neblilega ætlum í fræga fólka keppni í útlandinu.... Ég og Svanhildur erum saman í liði og Rósa og Valli... við þurfum að safna eins mikið að myndum af frægu fólki eins og við getum á meðan við erum í Costa og Mallorca... ég man ekki hvað er í verðlaun en það verður e-h voða fínt.... kannski að við ættum að leyfa Tinnu að vera með sem heiðursgest í keppninni þar sem ég veit að henni finnst ekkert leiðinlegt í keppnum og leikjum. ;)

Laugardagskvöldið var svo ekkert síðra, við S kíktum á nýja pleisið hennar Dóru sem var voða grænt og fínt svo taldi hún okkur á það að það væri voða sniðugt að kíkja í nokkur glös og svo í bæinn (þurfti kannski ekki mikið að sannfæra)....... fimm stelpur á lausu að spjalla um typpa og brjóstastærðir, pósa með sprauturjóma og neftóbaksdós... allavega margar helvíti skemmtilegar myndir eftir helgina sem ég ætti kannski að reyna að koma í svona online-albúm bráðum fyrir Katrínu.....

jæja allavega þarf ég að fara að pakka niður, kaupa linsur, sólarvörn osfrv.....hringja í Silvero vin minn á hótelinu og athuga hvort hann geti reddað mér miðum á Jamiroquai á miðvikudagskvöldið... ekki leiðinleg byrjun á fríi það.

Adios amigos


Friday, July 22, 2005 

were all going on a summer holiday....


.... yes bara 8 tímar í langþráð sumarfrí, ég man bara ekki eftir því síðast að ég hafi farið í sumarfrí eins og venjulegt fólk. Enda kannski ekki furða þar sem ég skipti um vinnu á hverju ári og spæni þar með upp sumarfrísdagana í að hætta fyrr svo ég geti byrjað fyrr á næsta stað.
Kannski að maður ætti að fara að fullorðnast og drífa sig aftur í skóla.

Úr 101 fréttunum er það annars helst að frétta að Rósa og Valli verða stödd þar í grillfjöri í kvöld...
(kannski að við höfum svona sea food grillpinna eins og til hliðar?)

....svo hefur heyrst að kók-nágranninn hafi verið að monta sig yfir að eiga eina trampólínið á Laufásveginum.... mjög skrítið þar sem ég sé allavega þrjú úr bakgarðinum mínum, en það er allavega gott að hann er búinn að kaupa trampólín handa erfingjanum, ekki seinna vænna, alveg að verða tveggja.

....sjónvarpsstjarnan er bara í góðu stuði.

....litla systir komst í Hér og Nú eftir góða frammistöðu á tískusýningu og erum við S svoldið svekktar þar sem við vonuðumst nú til þess að verða frægar á undan henni... oh well....

thats it.... more later


ps. Deit í gær.... ég er að verða expert í þessu!


Thursday, July 21, 2005 


Var að bóka hótel..................VÚ HÚ!!!!!!!
............trúi ekki að ég verði akkúrat þarna í næstu viku.... yeah baby!


 

Ætli það sé gúrkutíð hjá Helga Björns?

... hann tekur lagið á opnuninni á nýja strætókerfinu um helgina og svo verður Grafík með tónleika í félagsmiðstöðinni í Hnífsdal um helgina....


Tuesday, July 19, 2005 


Vá tvennt skemmtilegt sem gerðist í dag þrátt fyrir erfiða vinnufélaga...ha ha ha.....

#1 Ég er að fara til MALLORCA eftir 8 daga!


# 2 ég hitti gamlan séns og ég leit bara alls ekkert illa út... miklu
betur heldur en þegar ég sá hann síðast...
.....ég meira að segja blés á mér hárið í morgun, sem gerist næstum aldrei og fór í pils.... ég hlýt að hafa vitað þetta í undirmeðvitundinni, vildi nú samt að undirmeðvitundin (sem við skulum kalla u.m í framtíðinni því það er rosalega leiðinlegt að skrifa undirmeðvitund á lyklaborð), hefði getað sagt mér að plokka á mér augabrúnirnar í gær....

En hey! MALLORCA........here I come!


 

Rosalega finnst mér pirrandi að vinna með óhæfu fólki.
...af hverju geta ekki allir verið jafn klárir og ég?


Monday, July 18, 2005 

Afmælisbarn dagsins

Hún á afmæli í dag, Hún á afmæli í dag, Hún á afmæli hún Svanhildur.......

Afmælisbarn dagsins er engin önnur en stríðshetjan Svanhildur Hrund!
Til hamingju með daginn dúllan mín!!!!!

(athuga myndin var tekin í nam um árið)


Saturday, July 16, 2005 



Ég veit það er ljótt að segja það en ég held að sumu fólki sé bara ætlað að vera pakk.

Tók til dæmis eftir smáauglýsingu í dag þar sem einhver kona er að auglýsa eftir alls konar drasli gefins.... ástæðan fyrir því að fólk ætti að eyða peningunum sínum í hana er að hún er einstæð móðir og 75% öryrki....
....hún auglýsir m.a eftir lazy boy stól og fötum á "stóra" konu.
Kannski spurning að sleppa því að fá lazy boyarann gefins auglýsa frekar eftir hlaupabretti og spandex galla??

Í morgun las ég þessa auglýsingu fyrir Svanhildi og hún sagði mér frá því að þegar hún var að vinna í Byko í gamla daga þá kom einmitt kona rétt fyrir jólin að leita sér að stjörnu ofaná jólatréð, Svanhildur sem var þá á kassa, sagði konunni að þeir seldu ekki svona stjörnur
(athugið þetta var í gamla daga þegar það var ekki hægt að kaupa allt í Byko)
allavega, konan brjálaðist og sagði að Svanhildur hefði eyðilagt fyrir henni jólin þar sem hún væri öryrki og hefði þurft að fá einhvern til þess að keyra sig í Byko til þess að kaupa þessa stjörnu!!!!

....erum við ekki bara heimsmeistarar í white-trashi miðað við höfðatölu?


Friday, July 15, 2005 

Hafa ekki allir 30 sekúndur á dag?
Kíkið endilega á þessar síður á hverjum degi til að gefa mat og annað fyrir þá sem þurfa...til að auðvelda þetta er svo hægt að installa þessu toolbari hjá sér og clicka svo á hverjum degi!


 


Í draumum mínum í nótt var ég að leita að Beverly Hills 90210 geisladisknum mínum, hann átti víst að vera orðin svo mikils virði að ég ætlaði að fjármagna mín fyrstu íbúðarkaup með því að selja hann á e-bay....

....svo þegar ég fann loksins gripinn þá skellti ég honum í dvd spilarann (ég spila músík á honum heima þar sem fermingargræjurnar hafa gefist upp) og þá sé ég að það er eitthvað dvd-efni á disknum.... neblilega þáttur af 90210 sem var aldrei sýndur, lokaþáttur sem engin hafði séð.... da dara ramm!!!!!
...ég náði nú ekki að horfa á helvítis þáttinn áður en ég vaknaði, en það er spurning hvort maður ætti að fara að grafa upp diskinn og hlusta á gæðatónlistina á honum um helgina......
...gæti kannski grátið í koddann við "Saving forever for you" eins og í gamla daga.... ho ho ho!


Tuesday, July 12, 2005 


Það er eitt húsgagn heima hjá mér sem ég er sannfærð um að sé andsetið...

....neblilega fataskápurinn, helvítið á honum á það til að koma fyrir fötum þar inni sem eru ógeðslega ljót, úr sér gengin og úr tísku og svo býr hann til minningar í hausnum á mér um að hafa keypt þessi ljótu föt.

Eins og þetta væri ekki nóg, nei hann stoppar ekki þar, þar sem að ég er einstaklega þrifaleg stúlka þá hlýtur hann að puðra fötunum mínum út um allt herbergi!
Ég held ég þurfi særingarmann!
...............já eða bara eldspýtur.


Monday, July 11, 2005 

Sin City


Ég fór í bíó á laugardagskvöldið á Sin city, þrátt fyrir að stelpunni í miðasölunni hafi heyrst ég segja Mr. and Mrs. Smith og selt mér svoleiðis miða þá fór ég samt í sal 1 og horfði frekar á Bruce heldur en Brad....
... þessi mynd er alveg drullugóð, þótt maður hefði ekki vitað að Frank Miller hefði samið bækurnar þá er augljóst að höfundurinn er karlmaður.
Hvaða konu myndi detta í huga að búa til bæ þar sem konur ráða ríkjum og þær kjósa að vera hórur.....right.... testosterón fantasía af svakalegustu gerð...
En myndin er rosalega vel gerð í alla staði, maður er gjörsamlega að horfa á teiknimyndasögu, sum skotin eru pottþétt nákvæmlega eins og þau hafa verið teiknuð í bókinni. (sjá t.d til hliðar)

Mickey Rourke var frábær, reyndar voru flestir leikararnir frábærir nema kannski Bruce, sem mér fannst sístur hann var nú líka með lélegustu persónuna í myndinni að mínu mati.
Þessi mynd er ekki fyrir alla..... hún er jafn ógeðsleg og karlmaður með bakhár en ég mæli hiklaust með henni fyrir þá sem halda að þeir geti haft húmor fyrir ofbeldi, mannáti og klámi.

....svo er ég búin að vera með martraðir um Elijah Wood eftir að hafa horft á myndina, hann er búinn að heimsækja mig á hverri nóttu og hóta að éta mig.....og í nótt tókst honum það næstum því. Sem betur fer hafði ég drukkið alltof mikið vatn áður en ég fór að sofa þannig að ég vaknaði rétt áður en hann fann mig falda inní fataskáp og náði að skakklappast inná bað að pissa klukkan 6 í morgun óétin.

Ég hlakka til þegar hún kemur út á dvd, svona must have í kvikmyndasafninu ásamt Kill Bill myndunum.....svo bara að byrja að hlakka til Sin city 2 árið 2007!


Sunday, July 10, 2005 

Jasmín Kamilla 5.ára skvísa


Mér finnst eins og þú hafir fæðst í gær, það er svo stutt síðan að
þú varst smá skonsa uppá fæðingardeild en síðan eru víst liðin 5 ár....
Til hamingju með afmælið elsku Jasmín Kamilla.
Yndislegasta frænka í heimi!


Wednesday, July 06, 2005 

Mikið rosalega er ég ljót á hlið......
.........ekki það að ég sé falleg að framan eða aftan, en djísus hvað ég er fegin að ég sé mig nánast aldrei á hlið, það eru bara þið aumingjans vinir mínir sem þurfið að horfa uppá þennan hrylling þegar þið sitjið eða labbið við hliðina á mér....

Nú vantar mig bara stragedíu fyrir deitið í kvöld þannig að gaurinn sjái mig aldrei á hlið, væri ég kannski svoldið shadý ef ég labba bara fyrir aftan hann í allt kvöld?
....eða á ég kannski bara að vera ánægð með það að ég er nokkuð viss um að hann hefur séð mig á hlið áður og vill samt alveg hitta mig aftur?


Tuesday, July 05, 2005 

Ef ég hefði bloggað um helgina þá hefði ég sagt það sama og Rósa skvísa!

En ég ætla að setja inn einn link sérstaklega fyrir Valla einhenta.... hérna Valli!
Ha ha ha ha!


Friday, July 01, 2005 

note to self...
*athuga með flug
*kaupa tópasskot
*kaupa singstar 3 diskinn