
Í draumum mínum í nótt var ég að leita að Beverly Hills 90210 geisladisknum mínum, hann átti víst að vera orðin svo mikils virði að ég ætlaði að fjármagna mín fyrstu íbúðarkaup með því að selja hann á e-bay....
....svo þegar ég fann loksins gripinn þá skellti ég honum í dvd spilarann (ég spila músík á honum heima þar sem fermingargræjurnar hafa gefist upp) og þá sé ég að það er eitthvað dvd-efni á disknum.... neblilega þáttur af 90210 sem var aldrei sýndur, lokaþáttur sem engin hafði séð.... da dara ramm!!!!!
...ég náði nú ekki að horfa á helvítis þáttinn áður en ég vaknaði, en það er spurning hvort maður ætti að fara að grafa upp diskinn og hlusta á gæðatónlistina á honum um helgina......
...gæti kannski grátið í koddann við "Saving forever for you" eins og í gamla daga.... ho ho ho!