Sin City

Ég fór í bíó á laugardagskvöldið á Sin city, þrátt fyrir að stelpunni í miðasölunni hafi heyrst ég segja Mr. and Mrs. Smith og selt mér svoleiðis miða þá fór ég samt í sal 1 og horfði frekar á Bruce heldur en Brad....
... þessi mynd er alveg drullugóð, þótt maður hefði ekki vitað að Frank Miller hefði samið bækurnar þá er augljóst að höfundurinn er karlmaður.
Hvaða konu myndi detta í huga að búa til bæ þar sem konur ráða ríkjum og þær kjósa að vera hórur.....right.... testosterón fantasía af svakalegustu gerð...
En myndin er rosalega vel gerð í alla staði, maður er gjörsamlega að horfa á teiknimyndasögu, sum skotin eru pottþétt nákvæmlega eins og þau hafa verið teiknuð í bókinni. (sjá t.d til hliðar)
Mickey Rourke var frábær, reyndar voru flestir leikararnir frábærir nema kannski Bruce, sem mér fannst sístur hann var nú líka með lélegustu persónuna í myndinni að mínu mati.
Þessi mynd er ekki fyrir alla..... hún er jafn ógeðsleg og karlmaður með bakhár en ég mæli hiklaust með henni fyrir þá sem halda að þeir geti haft húmor fyrir ofbeldi, mannáti og klámi.
....svo er ég búin að vera með martraðir um Elijah Wood eftir að hafa horft á myndina, hann er búinn að heimsækja mig á hverri nóttu og hóta að éta mig.....og í nótt tókst honum það næstum því. Sem betur fer hafði ég drukkið alltof mikið vatn áður en ég fór að sofa þannig að ég vaknaði rétt áður en hann fann mig falda inní fataskáp og náði að skakklappast inná bað að pissa klukkan 6 í morgun óétin.
Ég hlakka til þegar hún kemur út á dvd, svona must have í kvikmyndasafninu ásamt Kill Bill myndunum.....svo bara að byrja að hlakka til Sin city 2 árið 2007!