]]>

Tuesday, September 27, 2005 

Boojah!


Ég hefði aldrei vaknað í morgun nema af því að kötturinn minn var í slagsmálum inní eldhúsi við þrjá aðra ketti.... hann gat náttúrulega ekki byrjað að slást klukkan 8 þannig að ég myndi vakna á réttum tíma í vinnuna heldur byrjaði hann að slást klukkan 9 svo ég mætti klukkutíma of seint í vinnuna....

Klukkan er núna um hálf tíu og ég er ennþá í vinnunni....úfffffff var ég búin að minnast einhvern tíman á það að ég er komin með leið á að vinna? Á einhver handa mér sykurfaðir?



Monday, September 26, 2005 

Hefur einhver séð tvífarann sinn?

Ég hef tvisvar orðið fyrir því að vera að horfa á sjónvarpið og sjá mynd í auglýsingu sem hefði getað verið af mér.... stundum segir fólk “vá hvað þessi er lík þér” eða eitthvað svoleiðis og yfirleitt finnst mér það ekkert en það er rosalega skrítið þegar maður sér það sjálfur.
Í fyrra skiptið var einhver snyrtistofa að auglýsa andlitsböð og það var mynd af einhverri stelpu sem lá á borði með lokuð augun og maska á andlitinu og hún var bara nákvæmlega eins og ég, í hitt skiptið var verið að auglýsa Sirkus blaðið og það var viðtal við Brynju Þorgeirsdóttur og mynd af henni inní stofu hjá sér og hún var bara nákvæmlega eins og ég á þeirri mynd..... venjulega er ég nú ekkert lík henni.
Í hvorugt skiptið man ég eftir að hafa setið fyrir á þessum myndum.

Í gær talaði ég svo við Ellu vinkonu og hún sagði mér að Sammi maðurinn hennar hefði séð tvífarann minn á Höfn í Hornafirði um síðustu helgi, hún var reyndar dökkhærð en alveg eins og ég.

Prófaði að googla þessu áðan, mig minnti að það héti doppelganger á ensku en þá fann ég þetta.... ógeðslega krípí, ég er nú fegin að ég hef ekki séð doppelgangerinn minn


Sunday, September 25, 2005 

Æsispennandi laugardagskvöld.

Laugardagskvöld/nótt og ég sit ein heima með kettinum... er e-h meira sad en það?

Ég get allavega huggað mig við það að ég verð ekki á öðrum degi í þynnku á mánudag og er það líklega í fyrsta skipti sem það gerist á árinu.
Mamma og co fengu sjokk í kvöld þegar ég bankaði uppá á laugardagskveldi og kom í heimsókn enda hefur það ekki gerst síðan....ja aldrei bara...jú eða þegar aðfangadagur lenti síðast á laugardegi.

Annars er ég að undra mig svoldið á því hvað er eiginlega að mér undanfarna morgna, ég er neblilega búin að vakna með einhver lög á heilanum, mér hlýtur að hafa verið að dreyma eitthvað skemmtilegt því ég var sko ekki einu sinni nýbúin að hlusta á þessi lög eða neitt.
Ég bara fatta það í sturtunni á morgnanna þegar ég byrja að raula.... á fimmtudag var það Copa Cabana og í gær var það Final Countdown..... ekkert í morgun.... hmmmm......

Jæja klukkan er hálf tvö og ég ætla að ákveða hvort ég eigi að fara uppí rúm að klára Engla og Djöfla eða stytta buxur..... spennandi ákvörðun.
Adios amigos


Thursday, September 22, 2005 

Íbúð Lilju systir í Köben


 

Hvað er að ske?

Ég veit alveg að líf mitt er ekki það mest spennandi sem um getur.
En þetta er kannski svona það helsta sem er að gerast....

*Á miðvikudögum þarf ég að velja milli Bráðavaktarinnar og Americas next top model kl:20... (ég á vidjó en það er ekki hægt að taka upp á það...long story)
Á fimmtudögum þarf ég að velja á milli Bachelor og Scrubs kl:20, horfa svo á Alias kl:21og velja svo á milli House og Cutting it kl:22.

Hmmmm flókið mál....það sem lagt er á mann....

* Mín ástkæra stóra systir og familí ætla að flytja til Danmerkur eftir tæpa tvo mánuði! Ég veit ekki hversu mikið ég á eftir að sakna þeirra, enda eiga þau núna heima í Mosó sem er nánast jafnlangt frá mér og Köben og bensínið þangað ca. jafndýrt og flugmiði frá Iceland Express.
Ekki er verra að “þurfa” að fara í heimsóknir þangað reglulega.

Mamma fer reyndar að fá taugaáfall þar sem systa hefur af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ákveðið að taka börnin sín með sér til Köben og þar með öll barnabörn múttu farin af landi....
(sé fyrir mér aukna pressu að eignast börn. Mamma Halli er næstur!)

Kannski að maður skelli sér bara til Köben í nám á næsta ári og ráði svo múttu sem au-pair??


Wednesday, September 21, 2005 

Your Career Type: Enterprising
You are engertic, ambitious, and sociable.Your talents lie in politics, leading people, and selling things or ideas.
You would make an excellent:
Auctioneer - Bank President - Camp DirectorCity Manager - Judge - LawyerRecreation Leader - Real Estate Agent - Sales PersonSchool Principal - Travel Agent - TV Newscaster The worst career options for your are investigative careers, like mathematician or architect.

Já sem sagt augljóslega á rangri hillu..... eins gott ég hellti mér ekki útí arkitektúr.



Tuesday, September 20, 2005 

Klukkedí klukk

Ég er tvíklukkuð þannig að ég verð víst að koma með einhverjar tilgangslausar staðreyndir.


*Ég er að bíða eftir að ég verði ættleidd, það gerist líklega fyrir þrítugt.
* Ég hafði svo miklar áhyggjur að fá ekki miða á Airwaves að ég fékk martröð um það í gærnótt.
*Einn fallegasti maður sem ég veit um er Billy Corgan.
* Ég er komin með ógeð á vinnunni minni, ekki vinnustaðnum, heldur vinnunni sjálfri og ef ég fer ekki bráðum að gera eitthvað annað þá frem ég sjálfsmorð.
* Mér finnst ávextir í mat frekar ógeðslegt.... t.d ananas á pizzu.


Ég ætla að halda klukkinu gangandi og klukka Ellu, Dóru, Katrínu og Ellen



Saturday, September 17, 2005 

Lagfæringar og breytingar

Jæja ég er sátt....
....þetta útlit á síðunni verðu bara að duga þar til ég fæ háskólagráðuna í html.... eyddi öllu gærkvöldinu að skrifa nýtt útlit var búin að finna ógeðslega flotta mynd sem átti að vera efst á síðunni, síðan hvít með svörtum stöfum og dökkrauðum borders og linkalista.... en svo þegar kom að því að importa þetta hérna inn þá bara fór allt til fjandans.... íslenski stafirnir hurfu og það kom mynd af einhverju barni sem ég þekki ekki neitt til hliðar, þannig að ég gafst bara upp.

Ég á ennþá eftir að breyta commentunum þannig að þau opnist í litlum glugga og vonandi tekst það bráðlega og þá tek ég mér frí frá vefsíðugerð og held áfram að blogga bara.

Annars er það helst að frétta að ég er á leiðinni niður Hvítá eftir örfáa tíma, það verður e-h fjör... vonandi kemst ég lifandi út úr því og skrifa eitthvað hér fljótlega.

Annars.....góða helgi og lifið heil!


Saturday, September 03, 2005 

Franz at last



Loksins í gær fékk maður að sjá tónleikana með Franz í gær eftir að hafa beðið eftir þeim síðan í febrúar.... fínir tónleikar, heldur stuttir samt.
Jeff who hituðu upp og voru bara mjög góði, ég hafði bara heyrt í þeim einu sinni áður en þeir voru með þétta dagskrá, það eina sem ég hefði kannski sett út á er að þeir eru að spila tónlist sem er kannski svoldið lík Franz..... það hefði kannski átt að leyfa einhverjum öðrum að spreyta sig?
Allavega var ég ánægð með kvöldið, dansaði, drakk smá bjór í góðum fíling með horpúkann hana Svanhildi mér við hlið....

Merkilegt samt hvað maður sér alltaf sömu týpurnar á tónleikum, það eru alltaf unglingarnir sem er nokkuð sama um tónlistina, eru bara þarna af því það er cool að fara, svo eru það gömlu kallarnir með skallann og eyrnatappana sem langa rosalega til að upplifa einhverja gamla tíma en eru ekki alveg að fíla hávaðann..... og að lokum beyglurnar sem dressa sig í sitt finasta púss í háu hælunum sem þær geta varla gengið á, dansa sama ögrandi súludansinn sama hvaða tónlist er í gangi.... Anywho takk fyrir mig Franz.... kom skemmtilega á óvart hvað hljómsveitarmeðlimir eru myndarlegir svona live.


 

Luddurnar mínar



Alveg hreint frábær ludduhittingurinn á fimmtudag..... Byrjaði kannski ekkert rosalega vel þar sem einhver (ég) gleymdi að Hafnarfjörður væri nær Keflavík heldur en Kópavogur þannig að drive-planið fór út um þúfur og við mættum ca. 20 mínutum of seint í matarboðið.... engu að síður var roadtrippið bara skemmtilegt og Þórunn driver stóð sig með stakri snilld.

Maturinn hjá Guðrúnu var rosalega góður, ekkert skrítið að hún sé búin að ná sér í kall miðað við eldamennskuna.... við vorum allar svo saddar að við beinlínis ultum út um miðnætti.... eðalpasta, salat, brauð, kaka og ostasalat.....nammmm!

Kakan var nú samt það allra flottasta við hittinginn, og eins og sjá má af myndinni hér að neðan þar sem piparjúnkurnar voru fengnar til að stilla sér upp með typpakökunni og horfa á hana löngunaraugum, þá er Guðrún snillingur í kökuskreytingum.

Nostalgían náði hámarki þegar Guðrún tók fram myndaalbúmin.. Sigga Ása átti metið í ljótum fatnaði og Ella í ljótu hári....ha ha ha... sem betur fer hafa þær báðar náð tökum á þessu með árunum, það voru líka ýmsar myndir af kossum sem allar voru búnar að gleyma að hefði átt sér stað...

Ég þakka kærlega fyrir mig elsku luddurnar mínar og get ekki beðið eftir næsta hitting, í kvöld er það svo ljósanótt hjá Keflóhjúkkunum og við Dröfn ætlum að hætta á annað roadtrip, þar sem ég ætla bara að halda kjafti og leyfa henni að keyra ;)