]]>

Thursday, December 30, 2004 

Ráðgáta lífsins nr.2

Hver er munurinn á sultu og marmelaði?


Wednesday, December 29, 2004 

Herra Dominos the charmer!

Tvær Dominos sögur í tilefni jólanna... af því það er náttúrulega brjálæðislega jólalegt.

Í annað skiptið svaraði stelpa og sagði:
"Dominos góða kvöldið, Elín, get ég aðstoðað...."
..... og ég stamaði i svona kortér að reyna að fatta hvernig hún eiginlega hefði vitað hvað ég heiti og mér fannst ég vera að tala við sjálfa mig allan tíman sem er mjög skrítin tilfinning. Þorði svo ekki að hringja aftur í Dominos fyrr en ég var viss um að þessi Elín væri pottþétt hætt að vinna þar.

Í hitt skiptið, núna um daginn bara þá svaraði e-h stráklingur og tók niður pöntunina sagði svo:
"...og má bjóða dömunni hvítlauksolíu?"
Ég hélt ég myndi brjálast úr hlátri og datt ekki í hug neitt comeback fyrr en eftir að ég var búin að skella á.

Á e-h Dominos sögu handa mér?



Tuesday, December 28, 2004 

Here come the meatsweats!

... Gleðileg jól allir saman!

vona að þið hafið haft það gott um jólin og séuð í óða önn að reyna að melta mat helgarinnar eins og ég... það er hægt að óverdósa á kjöti svo mikið er víst.... ég náði ekki einu sinni að borða hangikjöt þetta árið eftir hamborgarahrygginn og nautakjötið... úfffff!
Takk fyrir mig, ég fékk frábæra pakka og gæti ekki verið hamingjusamari.

En þá líður að skemmtilegasta tíma ársins.... ÁRAMÓTUM!!!! VÚ HÚ!
Það verða áramót í 101 þetta árið...familían ætlar að fjölmenna og að sjálfsögðu verður íbúðin stoppistöð fyrir djammið...
(ég held að við Svanhildur séum búnar að vera ansi duglegar að bjóða heim)

pælingin er að fara á Nasa....??? spurning hvort e-h betra verði í boði??

more later...
.... kveð í bili með skemmtilegum link ... ég fékk einmitt Best of Grim bókina í jólagjöf og búin að hlæja mig máttlausa



Thursday, December 23, 2004 

Ekki dauð enn...

nei nei ég er alls ekkert dauð... litli heilinn minn er bara að meðtaka aðeins of mikið af upplýsingum þessa dagana í vinnunni þannig að ég hef verið í pásu...
.....svo var ég líka að flytja í nýja sýningarsalinn í vinnunni þar sem ég er komin með skrifborð (laus úr tónlistarkompu helvítis), nýjan síma og 19" flatskjá (já það er sko hægt að blogga á honum)

Í fréttum er það helst að það er þorláksmessa í dag..... og fyrir þá sem voru að hugsa um að biðja mín á þessu ári þá fer að síga á seinnihlutann þannig að það er um að gera að hafa hraðann á!
Svanhildur sagði mér líka í gær að Lísa væri að vinna hjá pabba sínum í Jóni og Óskari í kvöld og myndi redda díl fyrir viljuga.

Til þess að auglýsa þetta enn frekar þar sem ég efa hversu stór karlkynslesendahópur minn er þá mun Svanhildur útdeila flyers í kringlunni í dag. Og athugið að þetta kostaboð gildir einnig fyrir hennar hönd.

takk í bili.

ps. nenni ekki að skrifa um helgina en úrdrátturinn fæst á síðu tyllitappadrottningarinnar.
Til að auka möguleikana á trúlofun þá mun ég sleppa því að blogga um Boston John og Fuglinn hennar Svanhildar.



Monday, December 13, 2004 

Minning um mann

Svartur mánudagur í dag...
...fólk mætti í vinnu í morgun hresst eftir jólahlaðborðið á laugardagskvöld en fær svo þær fréttir að einn samstarfsfélaginn hafi látist á sunnudag vegna áverka sem hann hlaut á skemmtistaðnum Áslák eftir að komið var í bæinn.

Það er ömurleg staðreynd að maður er ekki lengur hissa þegar svona kemur fyrir... jú að sjálfsögðu þegar það er einhver sem maður þekkir eða kannast við, en forsíður dagblaðanna virðast vera stútfullar af fréttum af ofbeldi og morðum á okkar litla Íslandi...
....það er orðið hversdagslegt...

Við ættum að skammast okkar!





Friday, December 10, 2004 

Me & Julio down by the schoolyard.

Ein mesta ráðgáta lífsins að mínu mati er hvernig Sóma tekst að selja fólki gamla hamborgara.
.... þetta er e-h sem ég get ómögulega skilið, ég meira að segja þekki fólk sem er eðlilegt að öllu öðru leyti nema að það hefur keypt sér svona borgara...
Alltaf þegar ég verð vitni að þessu með eðlilegt fólk þá spyr ég það hvort það eldi sér þá einn auka borgara heima þegar það eru hammarar í matinn og pakki honum í selló og taki með svo sér í vinnuna daginn eftir?
"Nei það er ógeðslegt" er venjulega svarið....
HALLÓ! er ekki ógeðslegra að borða gamlan hamborgara sem e-h bólugrafinn gaur í Garðabæ útbjó fyrir viku.....???
-----------------------------------------------------------------------------------------------

En á léttari nótum þá er lag dagsins:
Me and Julio Down by the Schoolyard með Paul Simon.
Lag sem byrjar á mjög skemmtilegum setningum:

The mama pajama rolled out of bed, and she ran to the police station.
When the papa found out, he began to shout, and he started the investigation


Thursday, December 09, 2004 

Hefnd konustelpunnar.

Inni á litlu skrifstofunni útí horni er konustelpa* að brjálast.
Það er ekki ljúft að sitja á lítilli skrifstofu útí horni við hliðina á hljómtækjadeildinni.
Í dag er verið að prófa hljómtækin og lagið sem varð fyrir valinu í prufuna er Hotel California.
Á morgun mun konustelpan* koma með sína eigin geisladiska og setja í öll tækin og líma fyrir.
Á morgun mun allur Lágmúlinn hlusta á Master of puppets.


*konustelpa= stelpa sem er ekki búin að sætta sig við að vera orðin kona og finnst ekki sanngjarnt þegar fólk kallar hana konu "nei bannað að taka þetta konan á" osfrv. Svona Britney fílingur....Im not a girl not yet a woman.....
(já og ég er sammála Bubba, vont lag.)


Wednesday, December 08, 2004 

Sign up!

SVO klár.... ég setti inn gestabók hérna neðst vinstra megin!
OG ég gerði það alein og sjálf... eru engin takmörk fyrir hæfileikum mínum?

Hey já og helstu fréttir dagsins eru að það er komin linkur á síðuna mín hjá einum skemmtilegasta bloggara landsins henni Soffíu!
Vú hú... Im somebody!


Tuesday, December 07, 2004 

Fréttir dagsins

--> Tíunda veður dagsins í dag er rigning

--> Ég náði að fljúga á hausinn á einu hálkublettinum sem eftir er á Íslandi.

--> Gaurinn sem situr á skrifstofu ská á móti mér er með House of the rising sun hringitón...
hann lifir ekki mikið lengur.

--> Og þó hann er búinn að gefa mér 3 konfektmola í dag.

--> Karsten sæti danski hringdi í dag.

--> Ekki í mig.

--> Það er nánast búið að sannfæra mig að fara á jólahlaðborðið.

--> Síðast þegar ég fór á jólahlaðborð í Valhöll ældu þrír í rútunni á leiðinni heim.




Monday, December 06, 2004 

Dagur 5

Kæri Jóli.

Lífið heldur áfram í HTH.... Ég sit inní kompu og kann ekki neitt... ja ok þetta er reyndar allt að koma, ég held ég sé að ná þessu blessaða teikniforriti, þá er það bara að tækla sölukerfið sem á víst að vera leikur einn, það er bara spurning um að ná e-h til að kenna mér á það, þar sem það er frekar mikið að gera hjá öllum.

Það verður gaman að sjá hvernig maður á eftir að fíla sig þegar nýja vinnuaðstaðan er komin í gagnið, þar sem ég er nú frekar mikil félagsvera þá get ég ekki beðið eftir að fá að sitja nálægt samstarfsfélögunum og tala við þá svona "actual conversation"...... mér finnst svoldið eins og ég sé búin að fara í tímavél þar sem ég sit á borði með Villa sem ég vann síðast með fyrir um 5 árum.... oh tú be 19 again!

Bjartasta hliðin so far er að mér er aldrei kalt í vinnunni og ég hef ekki séð einn einasta hitablásara... það er barasta eins og loftræstingin í húsinu virki!
og svo er líka besta matvörubúðin á landinu hérna beint á móti 10-11 með geðveikum salatbar í hádeginu..(er reyndar komin að því að overdósa á Fetaosti) ég hef ekki ennþá lagt í matinn hérna í mötuneytinu, ekki af því að ég veit hann er vondur heldur bara af því að ég hef bara einu sinni farið með e-h í mat sem mér líkar við og ég nenni ekki að fara ein upp og mingla.

Þetta er svona nokkurn vegin það sem ég hef að segja um nýju vinnuna so far... ég er svona indifferent, eins og ég gat kvabbað yfir vinnuálagi í Húsó þá er ég að deyja að vera svona mikil pannsla alla daga....vildi hálfpartinn að þeir myndu ráða einn nýjan í viðbót svo ég væri ekki nýjust!
Jólahlaðborð um næstu helgi... spurning hvort maður eigi að nenna að skella sér og ná þá bara að kynnast öllum á einu bretti.... já og svo ef maður drekkur of mikið þá er maður búin að skapa sér reputation for good.... já ég ætla að hugsa þetta aðeins... áhættan er mikil.

Annað er það nú ekki að frétta nema þá að það eru komin jól í 101... skrautið byrjað að flæða um íbúðina eftir verslunarferð í gær... nú get ég eiginlega ekki beðið eftir að setja upp nýja jólatréð mitt með ljósleiðaranum!!!! Hvenær má maður gera það??

Ok... fara að drífa sig heim og borða kjúklingasúpu og horfa á rosalega spennandi framhaldsmynd á Stöð 2 um mansal.

Elín.... glöð að vera ekki hóra. (ja ekki mikil allavega)

ps. Eftir jólagjafasjoppið um helgina þá er það nokkuð ljóst að Rósa fær flottustu pakkana í ár.. og þeir eru 3!




Friday, December 03, 2004 

Tennisolnbogi...for a lack of better title!

Áfram sæti Idolstrákur!

Þetta er allt sem ég ætla að segja í dag.... þó svo ég hafi frá ýmsu að segja...
.........um að gera að halda þessum eina sem les þetta á tánum.