]]>

« Home | Tennisolnbogi...for a lack of better title! » | Thinspiration - varúð ekki fyrir viðkvæma! » | Grúppía Íslands » | Gleðilegan Föstudag! » | Have you seen miss Jones? » | This just in.. » | Didda reporting for birthdayduty! » | Nennisiki. » | On a mission » | Tón Lyst »

Monday, December 06, 2004

Dagur 5

Kæri Jóli.

Lífið heldur áfram í HTH.... Ég sit inní kompu og kann ekki neitt... ja ok þetta er reyndar allt að koma, ég held ég sé að ná þessu blessaða teikniforriti, þá er það bara að tækla sölukerfið sem á víst að vera leikur einn, það er bara spurning um að ná e-h til að kenna mér á það, þar sem það er frekar mikið að gera hjá öllum.

Það verður gaman að sjá hvernig maður á eftir að fíla sig þegar nýja vinnuaðstaðan er komin í gagnið, þar sem ég er nú frekar mikil félagsvera þá get ég ekki beðið eftir að fá að sitja nálægt samstarfsfélögunum og tala við þá svona "actual conversation"...... mér finnst svoldið eins og ég sé búin að fara í tímavél þar sem ég sit á borði með Villa sem ég vann síðast með fyrir um 5 árum.... oh tú be 19 again!

Bjartasta hliðin so far er að mér er aldrei kalt í vinnunni og ég hef ekki séð einn einasta hitablásara... það er barasta eins og loftræstingin í húsinu virki!
og svo er líka besta matvörubúðin á landinu hérna beint á móti 10-11 með geðveikum salatbar í hádeginu..(er reyndar komin að því að overdósa á Fetaosti) ég hef ekki ennþá lagt í matinn hérna í mötuneytinu, ekki af því að ég veit hann er vondur heldur bara af því að ég hef bara einu sinni farið með e-h í mat sem mér líkar við og ég nenni ekki að fara ein upp og mingla.

Þetta er svona nokkurn vegin það sem ég hef að segja um nýju vinnuna so far... ég er svona indifferent, eins og ég gat kvabbað yfir vinnuálagi í Húsó þá er ég að deyja að vera svona mikil pannsla alla daga....vildi hálfpartinn að þeir myndu ráða einn nýjan í viðbót svo ég væri ekki nýjust!
Jólahlaðborð um næstu helgi... spurning hvort maður eigi að nenna að skella sér og ná þá bara að kynnast öllum á einu bretti.... já og svo ef maður drekkur of mikið þá er maður búin að skapa sér reputation for good.... já ég ætla að hugsa þetta aðeins... áhættan er mikil.

Annað er það nú ekki að frétta nema þá að það eru komin jól í 101... skrautið byrjað að flæða um íbúðina eftir verslunarferð í gær... nú get ég eiginlega ekki beðið eftir að setja upp nýja jólatréð mitt með ljósleiðaranum!!!! Hvenær má maður gera það??

Ok... fara að drífa sig heim og borða kjúklingasúpu og horfa á rosalega spennandi framhaldsmynd á Stöð 2 um mansal.

Elín.... glöð að vera ekki hóra. (ja ekki mikil allavega)

ps. Eftir jólagjafasjoppið um helgina þá er það nokkuð ljóst að Rósa fær flottustu pakkana í ár.. og þeir eru 3!




E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|