]]>

« Home | Minning um mann » | Me & Julio down by the schoolyard. » | Hefnd konustelpunnar. » | Sign up! » | Fréttir dagsins » | Dagur 5 » | Tennisolnbogi...for a lack of better title! » | Thinspiration - varúð ekki fyrir viðkvæma! » | Grúppía Íslands » | Gleðilegan Föstudag! »

Thursday, December 23, 2004

Ekki dauð enn...

nei nei ég er alls ekkert dauð... litli heilinn minn er bara að meðtaka aðeins of mikið af upplýsingum þessa dagana í vinnunni þannig að ég hef verið í pásu...
.....svo var ég líka að flytja í nýja sýningarsalinn í vinnunni þar sem ég er komin með skrifborð (laus úr tónlistarkompu helvítis), nýjan síma og 19" flatskjá (já það er sko hægt að blogga á honum)

Í fréttum er það helst að það er þorláksmessa í dag..... og fyrir þá sem voru að hugsa um að biðja mín á þessu ári þá fer að síga á seinnihlutann þannig að það er um að gera að hafa hraðann á!
Svanhildur sagði mér líka í gær að Lísa væri að vinna hjá pabba sínum í Jóni og Óskari í kvöld og myndi redda díl fyrir viljuga.

Til þess að auglýsa þetta enn frekar þar sem ég efa hversu stór karlkynslesendahópur minn er þá mun Svanhildur útdeila flyers í kringlunni í dag. Og athugið að þetta kostaboð gildir einnig fyrir hennar hönd.

takk í bili.

ps. nenni ekki að skrifa um helgina en úrdrátturinn fæst á síðu tyllitappadrottningarinnar.
Til að auka möguleikana á trúlofun þá mun ég sleppa því að blogga um Boston John og Fuglinn hennar Svanhildar.



E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|