]]>

« Home | Ónei....ég var að fatta að ég kann allan textann v... » | Fjörug umræða hjá mér í vinnunni... langar að gera... » | Þessi stórglæsilega stúlka er 26.ára í dag!Til ham... » | Í dag langar mig í.... » | Hæ hó jibbí jei! » | Jæja þá er komið að því, læra e-h nýtt á bloggernu... » | Brainfreeze » | Ekki get ég skilið fólk sem nennir í skrúðgöngu...... » | Oj hvað er leiðinlegt að vera þunn á mánudegi.... » | Nei gaman að rekast á þig... »

Monday, June 27, 2005

Er þessi túnfiskur kjúklingur?

Jæja.... helgin bara fín en maður er nú alltaf fegin þegar að það kemur mánudagur.... a aha.

Á laugardag ætlaði ég nú ekki að kíkja á djammið, hvað er þá betra en að fá sér smá blush og nokkrar frozen margarítur og kíkja aðeins í bæinn?
Ég, Svanhildur og Didda sátum heima að sötra og um klukkan tvö tökum við eftir einhverjum skrítnum manni útí garði, hann var á fjórum fótum, svartklæddur með grímu og hjálm með ljósi á..... skreið um garðinn með risastóra fötu, svoldið freaky sjón, ég reyndi að taka mynd af honum en batterýið var búið.... hann hefur líklega verið að tína ánamaðka.....og við hugsuðum já hún Unnur á efri hæðinni þekkir hann líklega og hefur leyft honum að tína... fréttum svo daginn eftir að Unnur þekkti hann ekkert og maðurinn greinilega stundar það bara kl:2 á nóttunni, um helgar að fara í ókunnuga garða og skríða um eins og fáviti....
.....ef ég hefði verið ein heima þá hefði ég hringt á lögguna!

En mikið elska ég nýju sjónvarpsstöðina!!!! Sirkus er frábær!
(reyndar er allt sem er frítt frábært)
Sá The Newlyweds í gær sem er bara æðislegur.... hún Jessica er e-h svo mikið grey að maður vorkennir henni bara, það er bara of flókið fyrir hana að lifa.....
....vá þvílík vinna sem það hlýtur að vera að eiga svona konu.... vona bara fyrir hans hönd að hún sé allavega góð í rúminu.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|