
Vá tvennt skemmtilegt sem gerðist í dag þrátt fyrir erfiða vinnufélaga...ha ha ha.....
#1 Ég er að fara til MALLORCA eftir 8 daga!
# 2 ég hitti gamlan séns og ég leit bara alls ekkert illa út... miklu
betur heldur en þegar ég sá hann síðast...
.....ég meira að segja blés á mér hárið í morgun, sem gerist næstum aldrei og fór í pils.... ég hlýt að hafa vitað þetta í undirmeðvitundinni, vildi nú samt að undirmeðvitundin (sem við skulum kalla u.m í framtíðinni því það er rosalega leiðinlegt að skrifa undirmeðvitund á lyklaborð), hefði getað sagt mér að plokka á mér augabrúnirnar í gær....
En hey! MALLORCA........here I come!