
Ég veit það er ljótt að segja það en ég held að sumu fólki sé bara ætlað að vera pakk.
Tók til dæmis eftir smáauglýsingu í dag þar sem einhver kona er að auglýsa eftir alls konar drasli gefins.... ástæðan fyrir því að fólk ætti að eyða peningunum sínum í hana er að hún er einstæð móðir og 75% öryrki....
....hún auglýsir m.a eftir lazy boy stól og fötum á "stóra" konu.
Kannski spurning að sleppa því að fá lazy boyarann gefins auglýsa frekar eftir hlaupabretti og spandex galla??
Í morgun las ég þessa auglýsingu fyrir Svanhildi og hún sagði mér frá því að þegar hún var að vinna í Byko í gamla daga þá kom einmitt kona rétt fyrir jólin að leita sér að stjörnu ofaná jólatréð, Svanhildur sem var þá á kassa, sagði konunni að þeir seldu ekki svona stjörnur
(athugið þetta var í gamla daga þegar það var ekki hægt að kaupa allt í Byko)
allavega, konan brjálaðist og sagði að Svanhildur hefði eyðilagt fyrir henni jólin þar sem hún væri öryrki og hefði þurft að fá einhvern til þess að keyra sig í Byko til þess að kaupa þessa stjörnu!!!!
....erum við ekki bara heimsmeistarar í white-trashi miðað við höfðatölu?