]]>

« Home | Jæja snípóblogg númer 3.Tóta ætlar að keyra okkur ... » | Snípuludduhittingur » | laugardagsdjamm » | R.I.P » | Leiðindahelgi og Konungar » | Fyrsti í reykleysi! » | Jarðafarir og Menning » | Ok verð að birta smá ráðleggingu handa Rósu og Val... » | Mallorca 2005! » | Me querer combinato »

Wednesday, August 31, 2005

Uppfinningar Mallorca ' 05



Ég gleymdi nú að segja frá nokkrum merkilegum hlutum úr Mallorca ferðinni....

.....á leiðinni út, nánar tiltekið í Leifstöð þar fundum við Svanhildur þessa fjöður sem þið sjáið á myndinni, án efa eftir flugunga sem hefur verið að klekjast út og breytast í flugvél....





....á leiðinni heim af djamminu eitt kvöldið tókum við eftir gæða furu sem stiginn upp á hótel var búin til úr.... ekki hefði mann grunað að maður fyndi svona fína furu annars staðar en í Svíþjóð.




.......ef vel er að gáð þá er geit á þessari mynd!!!!
já alvöru geit, seinna í ferðinni keypti ég mér einmitt leðurjakka úr þessari sömu geit.

(....svo er auðveldlega hægt að prenta þessa mynd út og hafa sem gestaþraut í næsta boði... "finndu geitina" gæti sá leikur kallast.)





Ég fann einbeitta brotaviljann minn eins og sést
greinilega á þessari mynd... ákvað eitt kvöldið á leiðinni heim af barnum að skrifa á hótelið "Elín og Svanhildur voru hér"
Komst svo að því daginn eftir að sektin við svona skemmdarverkum voru einhverjar 900 evrur..... sem betur fer eru nöfnin okkar mjög algeng á Spáni... já eða svoleiðis sko...






Þegar sumir eru á ferðalögum þá finna þeir tvífarann sinn.
Ég fann andstæðuna mína.



E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|