]]>

« Home | Fyrsti í reykleysi! » | Jarðafarir og Menning » | Ok verð að birta smá ráðleggingu handa Rósu og Val... » | Mallorca 2005! » | Me querer combinato » | were all going on a summer holiday.... » | Var að bóka hótel..................VÚ HÚ!!!!!!!...... » | Ætli það sé gúrkutíð hjá Helga Björns?... hann tek... » | Vá tvennt skemmtilegt sem gerðist í dag þrátt fyri... » | Rosalega finnst mér pirrandi að vinna með óhæfu fó... »

Friday, August 26, 2005

Leiðindahelgi og Konungar

Hvað á svo að gera um helgina?

...allavega get ég ekki tjúttað svona eins og reyklaus aumingi, ætli Bónusvidjó fái ekki bara dúndurviðskipti um helgina og tollurinn á eftir að sitja óhreyfður inní vínskáp.

...en að öðru en sjálfsvorkun þá las ég svoldið í gær og áttaði mig á því hvað ég er ótrúlega barnaleg, er það bara á almennings vitorði að konungsfjölskyldur eru styrktar með skattpeningum?
Nú eru Alexandra og prinsinn hennar í Danmörku að skilja og á næsta ári fær hún 19 milljónir króna í lífeyri. 7 milljónir eru teknar af lífeyri prinsins en afgangurinn er tekinn aukalega úr ríkissjóði.
Friðrik krónprins fær líka rúmlega fimm milljóna króna launahækkun og lífeyrir hans á næsta ári verður því samtals rúmlega 160 milljónir króna.

Ég hélt einhvern vegin alltaf að þetta lið ætti svona geyma fulla af gulli eins og Jóakim aðalönd og myndi eyða frídögum sínum í að synda þar... !!!!

Hérna að neðan er skemmtileg síða um konungsfjölskylduna í Danmörku, allavega er Jóakim núna á lausu spurning hvort maður ætti ekki að tékka á því svona uppá lífeyri í framtíðinni, þó svo að ég hafi fengið launahækkun í dag vú hú...!

http://www.kongehuset.dk/artikel.php?dogtag=k_dk_familien



ps. Hvað er að bloggernum, hann gerir bara e-h bil þegar maður gerir edit post og svo er ekki hægt að setja inn myndir né linka....grrrrrrr.....


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|