]]>

« Home | Ok verð að birta smá ráðleggingu handa Rósu og Val... » | Mallorca 2005! » | Me querer combinato » | were all going on a summer holiday.... » | Var að bóka hótel..................VÚ HÚ!!!!!!!...... » | Ætli það sé gúrkutíð hjá Helga Björns?... hann tek... » | Vá tvennt skemmtilegt sem gerðist í dag þrátt fyri... » | Rosalega finnst mér pirrandi að vinna með óhæfu fó... » | Afmælisbarn dagsins » | Ég veit það er ljótt að segja það en ég held að su... »

Monday, August 22, 2005

Jarðafarir og Menning

Fínasta helgi að baki....
....á föstudaginn ákváðum við vinnufélagarnir að eftir erfiðan dag (jarðaför fyrrverandi vinnufélaga) myndum við skella okkur út og fá okkur bjór sitja og hlæja svoldið.
Við töluðum einmitt mikið um jarðafarir, vorum við tvær sammála um að svona kirkjuútfarir væru rosalega þrúgandi og erfiðar......
.......ég segi allavega fyrir mína parta þá myndi ég vilja vera brennd, öskunni dreift í eyjum við stutta minningarathöfn, svo myndu vinir og fjölskylda setjast saman einhvert.... út að borða eða eitthvað og spjalla bara, minnast og hafa gaman... fagna því að ég hafi verið til yfirhöfuð...
(já ég er að reikna með því að einhver sé ánægður með það!)

...allavega þá sátum við í 8 tíma í sömu sætunum að kjafta, drekka bjór og hlæja eins og vitleysingar.... vona að vinnufélaginn hafi fylgst með okkur að ofan því ansi margar skemmtilegar sögur af henni voru rifjaðar upp.

Menningarnóttin var líka mjög skemmtileg, en vegna ástandsins á mér eftir föstudaginn þá var ég kannski ekki alveg í fullu fjöri við að troðast í miðbænum í rigningunni.... fór þess vegna heim og kíkti bara aftur í bæinn eftir flugeldana þegar farið var að fækka aðeins í bænum.... reyndar troðið á flestum stöðum..... en alveg helvíti skemmtilegt, er meira að segja með harðsperrur í hendinni eftir að hafa farið í sjómann við einhvern mann uppá bjór (ég vann, en það var reyndar með vinstri og hann var með sinaskeiðabólgu)

læt þetta duga á meðan ég er að reyna að detta í blogggírinn eftir sumarfrí...

ps. Sorrý Dröfn mín, gleymdi að láta þig vita að rauði dregillin var úti á laugardag!

pps..... Snípuludduhittingur í næstu viku þar sem Ella og Sigga verða í bænum, details later!





E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|