R.I.P
Það var eins og mig grunaði, eftir vinnu í gær var haldið í Bónusvidjóleiguna.... ein dvd og aukavidjóspóla......
......kvöldinu reddað þangað til ég kom heim og kveikti á sjónvarpinu þá heyrðist bara *Phhfffff* og það var dáið....
Í nokkra mánuði höfum við Svanhildur hlustað á hátíðnihljóð, sem við héldum að kæmu úr hinum ýmsu heimilistækjum, búnar að taka laptoppinn úr sambandi oftar en einu sinni, slökkva ljósin, setja heimilissímann í hleðslu osfrv. ekkert virkaði þangað til að við áttuðum okkur að helvítis hljóðið kæmi úr sjónvarpinu, þá var náttúrulega prófað að skipta um stöðvar, hækka og lækka
(á sjónvarpinu nb. enda kötturinn löngu búin að hella vatni yfir fjarstýringuna) en aumingjans sjónvarpið hefur greinilega bara verið á sínum síðustu mómentum að bræða úr sér.
Sem betur fer var til varasjónvarp á heimilinu sem er ca. 3ja tommu, þannig að við gátum allavega horft á myndirnar úr Bónusvidjó.... reyndar ekkert scart tengi á 3" tækinu þannig að ég varð að skreppa aftur á leiguna til að fá að skipta dvd-inu yfir í vídjómynd, stelpan á leigunni horfði á mig með ásökunaraugum "eru tveir tímar eða lengra síðan þú tókst myndina?"
og ég alveg "ha nei bara svona korter" eins og ég hefði tekið dvd farið heim að horfa á hana koma svo tveim tímum seinna og biðja um SÖMU myndina á vidjó!!! ha ha gott plott!
Hvað ætti maður svo að gera í kvöld? kaupa kíki og glápa á imbann?

![]() |