]]>

« Home | Ég elska gsm síma » | Vildi að ég ætti tímavél! » | Note to self » | Hvenær kemst upp um mig? » | Ha ha ha » | Glæný manneskja! » | Sunnudagur til sælu » | Mont dagsins » | Sko mig » | The four arsed woman. »

Thursday, May 05, 2005

Karíus og Baktus

Ég er svo nýbúin að taka eftir því hvað mér finnst rosalega leiðinlegt að bursta í mér tennurnar.... alltaf þegar ég byrja að bursta þá dettur mér e-h í hug sem ég þarf að gera, greiða mér, þvo mér í framan, taka til í baðherbergisskápnum osfrv... þannig að það tekur mig yfirleitt um 15 mínútur að klára að bursta tennurnar á meðan ég geri alla aðra hluti með tannburstann í kjaftinum og tannkrem lekandi niður á höku..... svo fatta ég þegar mig byrjar að svíða undan tannkreminu..."já ég var að tannbursta mig"
Fór einmitt til tannsa um daginn sem sagði að ég þyrfti að vanda mig betur að bursta vinstra megin því ég bursta greinilega mjög vel hægra megin, ég hugsa að ég byrji sem sagt á hægri og finni mér svo eitthvað að gera þegar kemur að vinstri hliðinni....
....djöfull er maður furðulegur


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|