]]>

« Home | Mont dagsins » | Sko mig » | The four arsed woman. » | Neibb » | Ég er í fýlu! » | Princess Consuela Bananahammock Páfi » | Áttu brauð? » | Það sem maður man ekki telst ekki með! » | Smá viðbætur » | Afmælisvikan ógurlega »

Monday, April 25, 2005

Sunnudagur til sælu

Dagurinn í gær var bara einn sá albesti sunnudagur sem ég hef upplifað.... byrjað á brönsi á Vegó með Svanhildi, tjillað frameftir degi og kíkt á nýja animation diskinn minn sem ég fékk í afmælisgjöf og svo var hittingur hjá gömlu góðu Snípuluddunum.

Þórunn bauð okkur í sunnudagslæri sem var geðveikt gott (Stefán á víst heiðurinn)
með öllu því meðlæti sem maður gæti hugsað sér... og svo Jóa Fel köku í eftirrétt (again Stefán á víst heiðurinn)
Svo var að sjálfsögðu blaðrað langt fram á nótt og endaði með því að nágrannarnir voru farnir að banka því lætin í okkur voru kannski einum of mikil.....
ógeðslega gaman hjá okkur.... næst verður myndakvöld þar sem að það voru ekki alveg allir að muna eftir öllu sem við vorum að tala um og sumir (ég) eiga sko myndir til að sanna mál sitt.

Takk fyrir mig Tóta mín... frábært kvöld!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|