Ást & Júróvisjón
Gleðilegan mán/miðvikudag..... ég trúi að þetta verði góð vika, ein úber hress á mánudegi, held það gæti e-h verið vegna skorts á þynnku þessa helgina.
Ég sá svoooo fyndið atriði í morgun á leiðinni í ræktina að ég er ennþá að hlæja með sjálfri mér svona annað slagið...
...Við Svanhildur vorum að rölta niðrá Hverfisgötu í strætó þegar að ungt par svínar á okkur og valhoppar hönd í hönd niður Bergstaðastrætið að sama strætóskýli... svo á meðan að við bíðum eftir strætó þá standa þau inní stætóskýlinu og halda svo fast utan um hvort annað að ég hélt að stelpugreyið myndi missa andann, hún var orðin ansi blá á tímabili, svo kemur strætóinn minn og stelpan er að fara í sama vagn en missir næstum af honum því þau kysstust svo mikið bless að slefið slitnaði ekki fyrr en bílstjórinn lokaði hurðinni, þá stendur stelpan í miðjum vagni og vinkar gæjanum og sendir fingurkossa þangað til ástmaður hennar hvarf úr augnsýn.... ha ha ha...
.. þau voru svoldið sæt svona hrikalega ástfanginn en líka alveg ógeðslega fyndin...
Eitt af því sem mér finnst rosalega skemmtilegt að gera er að ímynda mér hvernig fólk er, æji þið vitið svona þegar maður situr einhvers staðar og fylgist með fólki... núna er ég til dæmis alveg búin að ákveða að þetta par náði saman um helgina eftir að hafa verið skotin í hvort öðru úr fjarlægð í langan tíma... þau verða nokkurn vegin farin að búa fyrir næstu helgi, í ágúst fer hún að pirra sig á því að hann djammar mikið og fær bakþanka og byrjar að tékka á öðrum gaurum...
En ég ætla að skilja ykkur eftir með snilldarlink á nýja Evróvisjón lagið sem á án efa eftir að slá í gegn... allavega er ég sátt.