]]>

« Home | Cat garnish og glufur » | Með Fréttirnar úr Rúminu.... » | V-dagurinn » | Áfram Valur...já eða þannig sko » | Hversdagslífið » | Viltu taka við þessari rós? » | Pipar og salt » | Hún á afmæli í dag.... » | Viltu vera falleg? » | Nammidagur! »

Thursday, March 17, 2005

Ég þoli ekki...

...heimskt og þröngsýnt fólk!

Það fer nánast ekkert meira í taugarnar á mér og að vera að rökræða við fólk sem getur ekki komið með nein rök fyrir skoðunum sínum annað en "mér finnst það bara ógeðslegt" eða e-h álíka gáfulegt.
Var neblilega að lenda í smá umræðum núna áðan í vinnunni, þar sem við vorum að tala um ættleiðingar samkynhneigðra.... kveikjan að þessu var að ég var e-h að kvarta yfir því að það fá nánast allir að eignast börn (frétti í gær að ein sem er fáviti er ólétt) maður þarf að taka meirapróf til að keyra ruslabíl en hvaða fáviti sem er svo framarlega að hann sé með starfandi kynfæri getur eignast barn...
Hversu heimskur þarftu að vera til þess að finnast í alvörunni að börn séu betur stödd á munaðarleysingjahæli heldur en að búa hjá ástríkum foreldrum sama af hvaða kyni þeir eru???
Skoðun mín á þessu er að skoða hvert einstaka tilfelli til þess að ákvarða hvort fólk sé hæft til þess að ala upp börn, sama hvort það sé samkynhneigt eða straight.....
.....auðvitað eru til samkynhneigðir fávitar líka sem ekki ættu að eignast börn, en að mismuna þeim bara af því þeir eru samkynhneigðir finnst mér hrein og bein heimska.....

..og þetta var skoðun dagsins í boði Egils Kristals.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|